Netsjónvarp að byrja 11. apríl 2005 00:01
Fjarskiptafyrirtækið Hive byrjar með útsendingar á sjónvarpsefni í gegnum Netið í vor en tæknilegar prófanir eru þegar hafnar. Verið er að afla tilskilinna leyfa frá rétthöfum efnis og liggja þau fyrir á næstu vikum. Framboð á efni mun taka stórstígum framförum þegar líður á árið. "Um nýja tækni er að ræða. En þó að tæknin sé tilbúin er höfundarréttarheimurinn ekki eins tilbúinn þegar kemur að því að fá leyfi til að dreifa sjónvarpsefni yfir internetið. Það má segja að þessi bylgja af ólöglegu efni sem flæðir yfir netið sé að vinna gegn okkur," segir Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive. Stóru Hollywood-stúdíóin eiga stærstan hluta af því efni sem fólk vill horfa á í sjónvarpi og segir Arnþór að þau sé mjög varkár og hafi almennt séð ekki opnað fyrir þann möguleika að dreifa sjónvarpsefni yfir internetið. "En við sjáum fram á ákveðnar breytingar, það virðist vera að rofa til í þessum efnum þannig að það gefur okkur ástæðu til að vera bjartsýn á að okkur takist að loka þessum höfundarréttarsamningum. Þá er okkur ekkert að vanbúnaði," segir hann. Bæði verður hægt að horfa á útsendingarnar í sjónvarpi og í tölvu. Allar opnar sjónvarpsrásir verða opnar í gegnum tölvuna án þess að þurfi nokkurn aukabúnað. Í þeim tilfellum þar sem áhorfandinn vill fá myndina í sjónvarpið sitt þarf hann að kaupa afruglara. Í framtíðinni hyggst Hive bjóða upp á svokallað "Pay per View" með öllu því efni sem er dýrt í aðföngum og mun áhorfandinn þá greiða fyrir það efni sem hann horfir á. Þegar fram líða stundir mun Hive einnig bjóða upp á "Video on Demand" eða gagnvirkt sjónvarp. Viðskiptavinurinn velur sér þá mynd og horfir á þegar honum hentar. Sigurður G. Guðjónsson er stjórnarformaður Hive.
Fréttir Innlent Mest lesið Óttast gremju uppgjafahermanna í Rússlandi Erlent Rússneskir drónar skotnir niður í lofthelgi Póllands Erlent Með töskurnar fullar af marijúana Innlent Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Innlent Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Innlent „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Innlent Europol og Bandaríkin lýsa eftir úkraínskum tölvuþrjót Erlent Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Innlent Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Innlent Efast um að Bandaríkin leyfi sjálfstætt Grænland Erlent Fleiri fréttir Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Stjórnarandstaðan þurfi ný tæki í hendur eftir darraðardans sumarsins Með töskurnar fullar af marijúana Umboðsmaður afgreiddi 566 mál og skilaði 21 áliti Tuttugu prósent meira fjármagn í utanríkismál á næsta ári Ekki ráðist í bólusetningarátak gegn Covid-19 Handtekinn í miðborginni fyrir brot á vopnalögum Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán bara tímabundin Útsending komin í lag Forseti biðlar til þingmanna og ólíkleg þátttaka í Eurovision Skipar ekki nýjan vararíkissaksóknara Teppa vegna minniháttar umferðarslyss á Kringlumýrarbraut Fámenn mótmæli við þingsetningu: „Afætur! Aumingjar! Rasistar!“ Skipar nefnd um jafnrétti karla Hvatti þingmenn til að halda ekki áfram að setja met í málþófi Bein útsending: Guðsþjónusta og setning Alþingis „Við munum reyna að bæta öll mál“ „Er þetta allt sem Ísland getur gert?“ Bókun 35 verði keyrð í gegnum þingið Ríkisstjórnin sýnir á spilin og Alþingi sett í dag Ekki útgangspunktur að beita ákvæðinu Mikill meirihluti hlynntur Hvammsvirkjun Ruddust inn til manns og mölbrutu í honum tennurnar Boða 157 mál á 157. löggjafaþingi og hér er það helsta Kínversk ferðaskrifstofa fær ekki áheyrn hjá Hæstarétti Gagnrýnir hæstu ríkisútgjöld sögunnar í fjárlagafrumvarpi Svona var kynning ríkisstjórnar á þingmálum vetrarins Reyksprengju kastað inn á pall í Hafnarfirði Verið ættleiddur af Íslendingum Sjá meira