Erlent

Sprengihætta í norsku olíuskipi

28 manna áhöfn norska olíuskipsins Fjord Champion var flutt frá borði í morgun á meðan björgunarmenn reyndu að koma í veg fyrir olíuleka í skipinu. Eldur er í skipinu og var óttast að sprenging gæti orðið, en um 800 tonn af olíu eru innanborðs. Eldurinn er í vélarrúmi skipsins en slökkviliðsmenn hafa náð stjórn á honum þótt hann logi enn. Nokkrir skipverjar voru fluttir á sjúkrahús. Skipið er statt um tíu kílómetra undan suðurströnd Noregs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×