Veiran send vegna forvarna 13. apríl 2005 00:01
Stórhættuleg flensuveira, sem hægt væri að nota til að búa til banvæn sýklavopn, var send fyrir mistök á rannsóknarstofur um allan heim. Nú eru yfirvöld hvött til að eyða þessari veiru hið snarasta. Það voru bandarískir meinafræðingar sem létu sýnishorn af þessari banvænu inflúensuveiru fylgja með í tilraunabúnaði sem var í vetur sendur á tæplega fjögur þúsund rannsóknarstofur í átján löndum, frá Brasilíu til Ísraels, Líbanons, Sádi-Arabíu og Suður-Kóreu. Eftir því sem næst verður komist var þessi veira ekki send hingað til Íslands. Þessi inflúensuveira veldur svokallaðri Asíuinflúensu sem er stórhættuleg og banvæn ef ekki er rétt með hana farið. Á einu ári, árið 1957, dóu allt að fjórar milljónir manna úr þessari flensu en hennar hefur ekki orðið vart síðan 1968. Fólk sem er fætt eftir það hefur ekki mótefni gegn veirunni og því gæti hún valdið miklu manntjóni ef hún breiddist út. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að hætta á útbreiðslu veirunnar sé ekki mikil þar sem engar fregnir hafi enn borist af smiti. Stofnunin varar hins vegar við því að aðeins þurfi einn að smitast af þessari flensu til að hætta sé á heimsfaraldri. Megin áhyggjur manna snúast hins vegar að því að hryðjuverkahópar komist yfir þessa veiru og noti hana á einhvern hátt til að búa til banvæn sýklavopn. Þegar hefur verið haft samband við allar rannsóknarstofurnar sem fengu sýnishorn af veirunni og vonast er til að búið verði að útrýma henni fyrir vikulok. Þó er viðurkennt að aldrei verður hægt að staðfesta hvort öllum sýnishornunum hefur raunverulega verið eytt. Aðspurður af hverju verið sé að senda svona hættuleg sýnishorn á milli heimshluta segir Haraldur Briem sóttvarnalæknir að það sé gert til að hægt sé að búa til prófefni og próf til að geta greint veiruna ef hún færi af stað. Hann segir allar rannsóknarstofurnar hins vegar mjög vel búnar, þó vissulega geti alltaf átt sér stað slys, svo ekki sé talað um ef einhver reyni af ásetningi að koma veiru sem þessari út í samfélagið.
Fréttir Innlent Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira