Sport

Ákvörðun Michelin hefur engin áhrif

NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn heimsmeistara Renault segja að ákvörðun Michelin dekkjaframleiðandans að draga sig út úr Formúlu 1 eftir næsta tímabil hafi engin áhrif á áform liðsins um að verja titilinn á næsta ári.

"Við förum inn í næsta keppnistímabil staðráðnir í að verja titil okkar og ég er þess fullviss að Michelin ætlar að gera hið sama," sagði Bob Bell, tæknistjóri Renault.

Fernando Alonso er þessa dagana að prófa nýju vélina frá Renault, sem á næsta ári verður V-8 vél í stað V-10 áður, en dregið verður úr afli véla í Formúlu 1 á næsta tímabili. "Alonso er bara rétt að byrja að venjast nýju vélinni, en ég er viss um að hann verður farinn að þekkja inn á hana um eða eftir jólin," sagði talsmaður Renault.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×