Sport

Bayern byrjar titilvörnina vel

Keppni í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hófst í gærkvöldi þegar Þýskalandsmeistarar Bayern München burstuðu Borussia Mönchengladbach 3-0. Leikurinn var háður á hinum nýja og glæislega Allianz-velli sem tekur 66 þúsund áhorfendur. Uppselt var á leikinn en Owen Hargraves skoraði fyrsta markið á 28. mínútu. Skömmu fyrir leikhlé var franski varnarmaðurinn Valeri Ismael rekinn af velli en hann gekk til liðs við Bayern München frá Werder Bremen fyrr í sumar. Einum færri skoruðu Bæjarar tvívegis í lokin, í bæði skiptin hollenski markahrókurinn Roy McKaay. Aðrir leikir í 1. umferð þýsku knattspyrnunnar verða í dag og á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×