Tvö þorp umkringd í Egyptalandi 25. júlí 2005 00:01
Egypska lögreglan umkringdi fyrir stundu tvö þorp þar sem talið er að finna megi í það minnsta tvo hryðjuverkamenn sem tóku þátt í árásunum í Sharm el-Sheikh um helgina. Níu Pakistana er nú leitað í Egyptalandi þar sem grunur leikur á að þeir tengist hryðjuverkaárásunum í Sharm el-Sheik en þar fórust nærri níutíu manns og yfir hundrað og tuttugu særðust. Arabísku sjónvarpsstöðvarnar al-Jazeera og al-Arabiya greina frá því að talið sé að mennirnir hafi smyglað sér inn í landið á fölsuðum, jórdönskum vegabréfum. Einn mun hafa fallið á flótta undan lögreglu. Formælandi innanríkisráðuneytis Egyptalands vildi ekki tjá sig um tíðindin en Reuters hefur heimildir fyrir því að myndum af fimmtíu manns hafi verið dreift á landamærastöðvar, þar af nokkrum Pakistönum og þekktum, alþjóðlegum hryðjuverkamönnum. Fyrir stundu bárust svo af því fregnir að lögregla hefði umkringt tvö þorp þar sem talið er að tveir af hryðjuverkamönnunum feli sig, báðir Pakistanar. Þúsundir manna, bæði heimamenn og ferðamenn, söfnuðust saman í Sharm el-Sheik í gær til að mótmæla hryðjuverkaárásunum á laugardag. Egypska lögreglan hefur þegar handtekið meira en 70 manns í tengslum við sprengjutilræðin en þetta er mannskæðasta hryðjuverkaárás sem gerð hefur verið í Egyptalandi..
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira