Sport

Hargreaves fer hvergi

Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá þýsku meisturunum Bayern Munchen, hefur ákveðið að hafna tilboði Middlesbrough um að ganga til liðs við félagið í sumar. Hargreaves hefur verið hjá þýska liðinu síðan hann var unglingur og þjálfari Bayern segir ástæður þess að hann fari ekki gefa augaleið. "Hargreaves er að leitast við að tryggja sér fast sæti í enska landsliðinu og möguleikar hans á því eru miklu betri hjá okkur en á Englandi," sagði Felix Magath, stóri Bayern. "Hjá okkur hefur hann tækifæri til að leika í Meistaradeildinni og þar er besti vettvangurinn til að sanna sig. Hann mun berjast um stöðu í byrjunarliði okkar á næstu leiktíð og því held ég að hans bestu möguleikar liggi í því að vera um kyrrt," sagði Magath.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×