Lífið

Skorar á Strákana að hjóla með sér

Varaformaður Hjartaheilla ætlar að hjóla hringinn í kringum landið á fimmtán dögum ásamt fjölmörgum þjóðþekktum einstaklingum. Hann skorar á Strákana á Stöð 2 að hjóla með sér yfir Möðrudalsöræfin. Eggert Skúlason, varaformaður Hjartaheilla, leggur af stað í hringferðina næsta mánudag og Eiður Smári Guðjohnsen hjólar með honum fyrsta spölinn. Það er enginn beigur í Eggerti þó að hann þurfi að hjóla rösklega níutíu kílómetra á dag. Hann segist hafa  fundið það að stór maður eins og hann taki mikið á sig en hann ljúki leiðinni. Aðspurður hvort hann telji að Eggert hafi þetta af segir Eiður Smári að hann hafi fulla trú á honum en hann hafi meiri áhyggjur af sjálfum sér. Hann sé ágætlega þjálfaður íþróttamaður en ekki hafi reynt mikið á hann sem hjólreiðamann. Tilgangurinn með ferðinni er að safna fjármunum fyrir Hjartaheill og um leið að vekja athygli á baráttumálum félagsins. Eggert segir að félagið verði þakklátt, hver svo sem upphæðin verði. Ef það safnist milljón verði samtökin mjög þakklát en ef tvær milljónir safnist verði þakklætið tvöfalt meira. Bjarni Ármannsson, bankastjóri Íslandsbanka, og Árni Magnússon félagsmálaráðherra eru meðal þeirra sem hjóla með Eggerti. Hann skorar á Strákana á Stöð 2 að taka á sig rögg og sýna hvað í þeim býr. Þeir séu duglegir í ýmsu innan dyra en nú vilji hann að þeir komi og hjóli. Eiður Smári tekur undir þetta og segir kominn tíma til að Strákarnir sýni alvöru karlmennsku og taki alvöru áskorun. Það verði gaman að sjá hvernig þeir bregðist við áskoruninni. Aðspurður hvort þeir hafi það sem til þurfi í verkefnið segir Eiður að þeir Eggert voni að Strákarnir komi fram og sýni það. Það efist allir um það núna en þeir verði að afsanna það. Ferðalöngunum verður fylgt úr hlaði í beinni útsendingu í Íslandi í bítið og ferðinni verða síðan gerð náin skil í Íslandi í dag á meðan á henni stendur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.