Sport

Blikastúlkur sigruðu nýliða naumt

Greta Mjöll Samúelsdóttir tryggði Breiðablik nauman sigur á nýliðum Keflavíkur í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu en sigurmark hennar kom 2 mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 3-2 á Kópavogsvelli en Edda Garðarsdóttir og Sandra Karlsdóttir skoruðu fyrri mörkin tvö fyrir Breiðablik. Ólöfa Helga Pálsdóttir og Donna Chayne skoruðu mörk Keflavíkur sem var yfir, 2-1 í hálfleik. KR vann stórsigur á ÍA, 1-7 uppi á Skaga og Valur er 2-0 yfir gegn Stjörnunni en sá leikur hófst kl. 14.00. Kl. 15.00 mætast FH og ÍBV í Kaplakrika.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×