Grafa þarf úrganginn ómeðhöndlaðan 14. apríl 2005 00:01
Grafa þarf nánast allan sláturúrgang ómeðhöndlaðan í jörð, þegar Kjötmjölsverksmiðjunni í Hraungerðishreppi verður lokað. Framkvæmdastjóri verksmiðjunnar segir þróunina vera bakslag sem ekki ætti að þekkjast hjá siðmenntuðum þjóðum. 60-70% af öllum sláturúrgangi hefur verið meðhöndlaður í verksmiðjunni síðustu ár. Á föstudaginn verður henni lokað og allti vinnslu hætt, án þess að aðrar lausnir séu fyrir hendi en urðun ómeðhöndlaðs sláturúrgangs. Fjórir munu missa vinnuna þegar verksmiðjunni verður lokað. Torfi Áskelsson, framkvæmdastjóri verksmiðjunnar, sem tekin var í notkun hausið 2000, segir að ekki verði annað við verksmiðjuhúsið að gera en að rífa það niður og selja til útlanda. Vilji sé hins vegar til að bíða í einn til tvo mánuði og sjá hvort stjórnvöld muni ekki bregaðst við svo hægt verði með einhverju móti að halda vinnslunni áfram. Ástæða lokunarinnar er að taprekstur hefurð verið á verksmiðjunni undanfarið, eða um 1-2 milljónir á mánuði. Að sögn Torfa hefur KB banki rekið verksmiðjuna og trúðu því og treystu að stjórnvöld kæmu til aðstoðar, en það brást. Eftir lokun verður sláturúrgangur grafinn ómeðhöndlaður í jörð. Aðspurður hvað sé til ráða segir Torfi að hægt væri að setja úrvinnslugjald á allar sláturafurðir, eða u.þ.b. 3 krónur á kílóið, sem færi svo í úrvinnslusjóð sem greitt yrði úr til verksmiðja eins og þessarar til að meðhöndla úrganginn eins og hjá siðmenntuðu fólki. Ýmsar stofnanir hafa gefið grænt ljós á moltugerð úr sláturúrgangi í Þykkvabænum og eru fyrirhugaðar framkvæmdir nú í grenndarkynningu hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Hins vegar hefur verið bannað að nota kjötmjölið sem til verður í verksmiðjunni í nokkurn hlut. Úrgangurinn hefur þó verið urðaður eftir meðhöndlun síðustu tvö ár þar sem umfang hans minnkar um allt að 60% og smithættu hefur verið eytt með hitun upp í 140 gráður.
Fréttir Innlent Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Sjá meira