Ráku Gyðinga úr landi í stríðinu 10. apríl 2005 00:01
Samkvæmt danska dagblaðinu Politiken komu upplýsingar um þetta fyrst fram árið 1998, þegar íslenski sagnfræðingurinn Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson birti niðurstöður rannsókna sinna á örlögum danskra Gyðinga í Þýskalandi á stríðsárunum. Þáverandi ríkisstjórn í Danmörku ákvað í framhaldinu að skipa opinbera nefnd til að gera ítarlega könnun á örlögum þessa fólks. Nefndin hefur nú skilað af sér skýrslu þar sem niðurstöður Vilhjálms Arnar eru staðfestar. Fram kemur að dönsk stjórnvöld höfðu frumkvæði að því að vísa að minnsta kosti 19 Gyðingum úr landi á árunum 1940-1942. Hvergi kemur fram að þetta hafi verið gert að beiðni Þjóðverja, sem hersátu Danmörku á þessum tíma. Í nokkrum tilvikum var um að ræða Gyðinga sem flúið höfðu til Danmerkur undan ofríki nasista. Í skýrslunni segir enn fremur að lögfræðingar hafi ítrekað varað danska embættismenn við því að vísa þessu fólki úr landi, þar sem lífi þess væri bráð hætta búin í Þýskalandi. Talsmenn nefndarinnar segja þó ekki hægt að sýna fram á að dönsk stjórnvöld hafi haft vitneskju um fyrirætlanir nasista um útrýmingu Gyðingum á þessum tíma. Engu að síður er fullyrt að dönskum stjórnvöldum hafi verið ljóst að Gyðingar voru ofsóttir í Þýskalandi á þessum árum. Síðar í þessum mánuði kemur út bók eftir Vilhjálm Örn um örlög þessa flóttafólks þar sem meðal annars segir frá konu að nafni Brandla Wassermann sem var vísað frá Danmörku ásamt þremur börnum sínum og endaði ævidagana í útrýmingarbúðunum í Auschwitz.
Fréttir Innlent Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Sjá meira