Langar að týnast á Íslandi 7. apríl 2005 00:01
Leitin að sjálfum sér er lykilþemað í myndum leikstjórans Walters Salles, sem verður við frumsýningu nýjustu myndar sinnar í kvöld. Hann ákvað að framlengja dvöl sína á Íslandi því hann langar að týnast hér. Byltingarleiðtoginn Che Guevara er umfjöllunarefni nýjustu myndar Salles, Diarios de motocicleta. En hvers vegna Che? Salles segir að myndin sé um Ernesto Guevara, áður en hann hafi orðið uppreisnarleiðtoginn Che. Sagan segi frá fyrsta ferðalagi hans um Rómönsku-Ameríku. Hún fjalli um sjálfsuppgötvun en jafnframt það sem kalla mætti uppgötvun á sjálfsmynd Rómösku-Ameríku. Það sem sé áhugvert við myndina sé að hún sé ekki um átrúnaðargoðið Che sem sjáist á bolum fólks heldur ungan mann sem efist, hafi enga fullvissu og reyni að finna sjálfan sig og velja. Vegamyndir eru áberandi þegar litið ef yfir feril Salles. Central Station og Behind the Sun segja einnig þroskasögur einstaklinga. Sjálfur er Salles sonur diplómata, ferðaðist mikið í æsku og segir að fyrsta æskuminningin sé af veginum fram undan. Hann segist heillaður af myndum þar sem persónurnar komist á leiðarenda og hafi breyst frá því að þær hófu ferðalagið. Hann segist telja þetta tengjast því að íbúar Rómönsku-Ameríku tengist allir landi eða heimsálfu sem sé enn að skilgreina sig og velja hvað hún vilji vera. Vegamyndirnar séu góð leið til að einbeita sér að þessu og sjá hvernig breytingar eigi sér stað. Það sé ekkert vit í því að gera vegamyndir í þjóðfélögum sem séu í mjög föstum skorðum. Þegar hann hafi heyrt um Börn náttúrunnar, mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, hafi hann ekki skilið hvernig væri hægt að gera vegamynd á Íslandi. Það hafi í fyrstu reynst lítið vit í því fyrir honum en svo hafi annað komið í ljós. Spurningin um sjálfsmyndina sé fyrir hendi í íslenskum bókmenntum, Íslendingasögunum og tónlist og kvikmyndum. Hann telji að þetta tengist leitinni að því hver við séum, hvaðan við komum og hvert við stefnum. Salles ákvað eftir komuna hingað til lands, eftir að hafa flækst um Reykjavík, hlustað á Múgison og fleira, að framlengja dvöl sína og villast. Hann bendir á að skáldið Fernando Pesoas hafi sagt að maður gæti aðeins þekkt land eða borg ef maður villtist þar. Salles er staddur hér á landi vegna kvikmyndahátíðar sem hefst í kvöld, en þar verða í boði 65 myndir hvaðanæva úr heiminum.
Menning Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Fleiri fréttir Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Sjá meira
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið