Draga úr styrkjum til landbúnaðar 31. mars 2005 00:01
Íslensk stjórnvöld þurfa að draga verulega úr styrkjum til landbúnaðarins þegar samningur Alþjóðaviðskiptamálastofnunarinnar sem nú er í smíðum tekur gildi, að öllum líkindum í árslok 2007. Eftir er að ákveða hvar í kerfinu verður mest skorið niður. Aðilar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar fara reglulega í svokallaðar samningalotur þar sem framtíðarreglur um alþjóðaviðskipti eru mótaðar. Enn er eftir að ganga frá smáatriðum en það er ljóst að næsti samningur mun fela í sér alvöru tollalækkanir og niðurskurð á styrkjum og þar með aukinn aðgang þróunarríkja að vestrænum mörkuðum fyrir sínar landbúnaðarafurðir. Sem stendur styrkir íslenska ríkið landbúnaðinn um tíu og hálfan milljarð króna á ári en að öllum líkindum verða þeir styrkir að lækka í um sex milljarða fyrir 2012. En er íslenska landbúnaðarkerfið undir það búið? Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu, segir að landbúnaðarstefnan, eins og hún t.a.m. birtist í búvörusamningum, sé miðuð við þann veruleika sem búist er við að muni blasa við á komandi árum. Guðmundur segir trúverðugleika alþjóðaviðskiptakerfisins í raun í húfi í þessari samningslotu og þar skipti landbúnaðurinn mestu. Ísland muni ekki fá neina sérmeðferð, þótt markmiðið sé að tryggja sveigjanleika og aðlögunartíma fyrir íslenskan landbúnað. Aðpsurður hvar megi helst búast við niðurskurði segir Guðmundur að varðandi innanlandsstuðninginn sérstaklega sé um að ræða framleiðslutengdan og markaðstruflandi stuðning eins og framleiðslutengdar beingreiðslur, t.d. til mjólkurframleiðenda, eða markaðsverðsstuðning eins og opinber verðlagning á mjólkurafurðum. Guðmundur minnir þó á að enn eigi eftir að klára samninginn og sjálfsagt muni allar greinar landbúnaðarins finna fyrir þessu að einhverju leyti þegar fram líða stundir.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira