Síðasta atvinnuflug Arngríms 29. mars 2005 00:01
Eftir ríflega hálfrar aldar atvinnuflugmannsferil tók Arngrímur Jóhannsson á loft í síðasta sinn á Kúbu í nótt og í morgun lenti hann í Keflavík. Einhver þekktasti flugstjóri landsins stýrir ekki himinfleyjum fylltum farþegum aftur. Arngrímur Jóhansson á nítján þúsund flugstundir að baki og nú er hann sestur í helgan stein. Það þýðir þó ekki að hann sé hættur öllum afskiptum af flugi. Arngrímur segist eiga nokkur leikföng sem hann ætli að dunda sér við. Þá ætli hann að skoða landið betur og hann hyggist taka fyrsta sumarið í að fljúga um landið í rólegheitum. Flugfélagið Atlanta var, eins og frægt er, stofnað við eldhúsborðið. Tæpum tuttugu árum síðar er félagið hið stærsta sinnar tegundar í heiminum með bækisstöðvar um víða veröld. Er Atlanta það sem stendur hæst þegar Arngrímur lítur yfir feril sinn eða eitthvað allt annað? Arngrímur segist ekki geta sagt að neitt standi upp úr. Þetta sé bara vinna sem gengið sé að að morgni og þakkað sé fyrir að komast í gegnum daginn. Arngrímur segir að auðvitað hafi verið stórar sveiflur í starfinu en þær skynji menn eftir á en ekki fyrir fram. Hann hafi oft haft stein í maganum í tengslum við rekstur Atlanta, en reksturinn hafi ekki verið bein braut og slétt. Hann segist bara þakka fyrir að muna ekki eftir neinu sem standi upp úr. Aðspurður um eftirminnileg eða æsileg atvik sem séu ofarlega í minni segir Arngrímur að flugheimurinn sé ekki eins feiknarlega ævintýralegur eins og menn haldi. Þetta sé vinna og hann hafi sagt það áður að það eina sem hann geti gert sé að láta fólk vinna fyrir sig og taka svo gloríuna sjálfur. Spurður hvort hann myndi velja flugið ef hann stæði í dag frammi fyrir því að kjósa sér starfsvettvang segir Arngrímur að hann gæti alveg hugsað sér að halda áfram að fljúga. Þetta sé góður heimur og gott starf.
Menning Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Fleiri fréttir Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Sjá meira