Rukkað fyrir hagsmunagæslu 29. mars 2005 00:01
Neytendasamtökunum hafa borist fjölmargar kvartanir yfir framgangi fasteignasala við innheimtu umsýslugjalda. Hafa samtökin nú sent erindi til Samkeppnisstofnunar og óskað eftir að viðskiptahættir fasteignasala í þessu sambandi verði skoðaðir. Neytendablaðið greinir frá því að á undanförnum árum hafi fasteignasalar krafist þess í vaxandi mæli að kaupendur fasteigna greiði sér fast gjald, svokallaða umsýsluþóknun. Þar segir að samtökin efist ekki um heimild fasteignasala til að innheimta umsýslugjöld í ákveðnum tilvikum en sett er út á þá viðskiptahætti sem tíðkist við innheimtu gjaldanna. Til að mynda sé fjarstæða að fasteignasalar einir geti þinglýst skjölum vegna fasteignaviðskipta. Þá er ekki fallist á þau rök að fasteignasölum sé heimilt að leggja sérstakt gjald á kaupendur vegna hagsmunagæslu. Sú hagsmunagæsla eigi að vera innifalin í söluþóknun sem seljandi innir af hendi. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala, segir lýsingar Neytendasamtakanna villandi. Hann segir að í lögum um sölu fasteigna séu margvísleg ákvæði sem hafi að geyma skyldur fasteignasala gagnvart kaupendum í gegnum allt fasteignasöluferlið. Grétar segir alls ekki rétt að kaupendur megi þinglýsa gögnum sjálfir. Fasteingasalinn beri ábyrgð á gögnunum þegar þau séu komin til hans og á því að þau skili sér til sýslumanns. Ef þau glatist sé það á ábyrgð hans. Það væri því glapræði ef hann léti kaupanda fara út með gögnin og þau myndu ekki skila sér í þinglýsingu. Grétar segir að fasteignasalar séu orðið meira meðvitaðir um hve rík ábyrgð liggi að baki því að vinna fyrir kaupendur og sé það ástæða þess að umsýslugjöld hafi hækkað. Þá bendir hann á að ef fasteignasali þyrfti ekki að gæta hagsmuna kaupanda heldur eingöngu seljanda, eins og víða erlendis, þyrfti kaupandi alla jafna að vera með lögmann sér við hlið, sem væri kostnaðarsamt. Grétar hefur ekki áhyggjur af niðurstöðu samkeppnisyfirvalda.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira