Tíkin tuggði tölvukubb 28. mars 2005 00:01
Litlu mátti muna að páskafrí Vigdísar Esradóttur, forstöðumanns Salarins í Kópavogi, færi í hundana þegar tíkin Una tuggði frá henni tölvukubb með mikilvægum gögnum miðvikudaginn fyrir páska. "Hún náði í kubbinn og tuggði vel og vandlega áður en ég náði honum af henni. Ég reyndi að stinga kubbnum í tölvuna en allt kom fyrir ekki, svo ég þurfti í flýti að skrifa bréf til áskrifenda minna sem átti að fara í póst fyrir páska. Þar að auki sá ég að ég þyrfti að vinna heilan dag í páskafríinu." Vigdís mætti kvefuð og þungbúin til vinnu annan dag í páskum og kunni Unu sinni litlar þakkir, þegar upptökumaðurinn Sveinn kom aðvífandi til bjargar. "Sveinn bauðst til að kíkja á kubbinn, sem var til allrar hamingju enn í ruslafötunni, og sá að lóðningnuna vantaði á hann. Hann bauðst til að reyna að laga kubbinn og viti menn, hann virkar!" segir Vigdís og greinilegt að þungu fargi er af henni létt. "Ég sé fram á að þurfa að vinna í fimmtán mínútur í staðinn fyrir fimm klukkustundir eins og stóð til, og fæ því dálítið páskafrí." Vigdís segist hafa hugsað Unu þegjandi þörfina þegar hún gæddi sér á á kubbnum. "Ég ætla ekki að segja þér orðin sem voru látin fjúka í hita augnabliksins. En ég er löngu búin að fyrirgefa henni enda er hún unaðsleg," segir Vigdís um Unu, sem var ekki neitað um páskasteikina þrátt fyrir uppátækið.
Fréttir Innlent Mest lesið Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Erlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent Flestir vilja Katrínu Jakobs sem forsætisráðherra Innlent Ók einn frá höfninni og kom til baka tæpri klukkustund síðar Innlent Saltkjötið háskalegt heilsutæpum Innlent Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Innlent Laun bæjarfulltrúa lækkuð Innlent Richard Attenborough allur Erlent Slökkva á áróðurshátölurunum Erlent Fleiri fréttir Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni „Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Ekki fleiri barnaníðsmál í fimmtán ár Eldsvoði, Bjarni Ben og fjölskylduerjur Veitir ekki viðtöl að sinni Hundrað ára gamalt hús sem varð myglu að bráð Aukin veikindaforföll ekki vegna einstaklingsbundinna vandamála Elsti Íslendingurinn 105 ára gömul kona „Margt óráðið í minni framtíð“ Ein fjölskylda aðstoðuð með gistingu vegna brunans Sigurður Helgi kjörinn varaforseti „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Ein í framboði og áfram formaður Einar og Magnea í efstu sætum Framsóknar í Reykjavík Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Sprenging í vændi og handboltafár eftir sigur á Svíum Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Brunavarnir Suðurnesja luku störfum á öðrum tímanum í nótt Handtekinn grunaður um íkveikju „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Inni í húsinu þegar eldur logaði í fjölbýlishúsi Náttúruverndarsamtök fjarlægðu stíflu Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Sjá meira