Breytingar vegna fornleifafundar 27. mars 2005 00:01
Breyta þarf hönnun í kringum Nesstofu á Seltjarnarnesi eftir að stétt sem er við húsið fannst við fornleifauppgröft á svæðinu. Ýmsir smámunir hafa fundist við uppgröftinn. Framkvæmdir hafa staðið yfir í kringum Nesstofu en til stendur að lækka yfirborð svæðisins og finna upprunalegt yfirborð, eða eins og það var þegar húsið var byggt um miðja átjándu öld. Guðmundur Ólafsson, fagstjóri fornleifa Þjóðminjasafns, segir að upphaflega hafi líka staðið til að finna út hvort stétt hafi upphaflega verið í kringum húsið. „Ég sé ekki betur en að við séum núna komin niður á þá stétt,“ segir hann. Reiknað er með að vinna við fornleifauppgröftinn í kringum Nesstofu taki allt að tvo mánuði. Guðmundur segir að búið hafi verið að hanna svæðið í kring og því átti hann ekki von á að finna neitt. Með hliðsjón af fyrrnefndum fundi þurfi þó líklega að breyta hönnuninni smávegis. Grískur fornleifafræðingur, Angelos Parigoris að nafni, sem unnið hefur undanfarin þrjú sumur við fornleifauppgröft að Hólum, var fenginn til að aðstoða við verkefnið við Nesstofu. Hann segir starfið spennandi og ganga ágætlega. „Nokkrir áhugaverðir hlutir hafa komið upp og vonandi verður meira um það,“ segir Parigoris. Á meðal smáhluta sem fundist hafa eru naglar, leirker og gler - dæmigerðir hlutir fyrir Ísland að sögn Grikkjans.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira