Vændismálum fækkaði hjá Stígamótum 8. mars 2005 00:01
Vændismálum fækkaði hjá Stígamótum í fyrra miðað við árið á undan.Í hittifyrra nýttu 30 einstaklingar sér viðtalsþjónustu Stígamóta vegna vændis en í fyrra voru það 22 einstaklingar. Ný vændismál voru tíu, þar á meðal einn karl, en þau gömlu voru 12. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá Stígamótum í gær. Nokkrar konur voru í reglulegu símasambandi við ráðgjafa Stígamóta vegna vændis en símaviðtöl voru ekki skráð í fyrra og er því ekki vitað nákvæmlega hver fjöldinn er. Þá er vændi falið vandamál og koma upplýsingar um það ekki í ljós fyrr en eftir margra mánaða viðtöl. Skráningar viðtala fara hinsvegar fram eftir fyrstu viðtöl og vantar því upplýsingar um vændi í einhverjum tilvikum. Starfskonur Stígamóta kynntu ársskýrslu sína á blaðamannafundi í gær. Þar kom fram að þær töldu ekki rétt að draga endilega þá ályktun að vændi hefði dregist saman í fyrra þó að þeim hefði fækkað milli ára sem nýttu sér viðtalsþjónustu samtakanna, einstaklingarnir væru of fáir til að draga slíka ályktun. Á fundinum kom fram að fjöldamargar konur frá 16 ára og upp úr kæmu til Stígamóta, stundum kæmu konur vel yfir miðjum aldri sem hefðu orðið fyrir sifjaspellum eða öðru ofbeldi í æsku. Í viðtölunum kæmi síðan stundum smám saman í ljós að þær hefðu gengið í gegnum ýmislegt annað, til dæmis vændi. "Þetta kemur alveg heim og saman við okkar starf. Oftast kemur fólk til okkar vegna sifjaspella eða nauðgunar. Ef það næst gott trúnaðarsamband þá kemur hitt í ljós mánuðum eða árum seinna," segir Guðrún Jónsdóttir, starfskona Stígamóta. Stígamót áttu 15 ára afmæli í gær.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira