Innlent

Hvönn gegn fuglaflensu og alnæmi?

Vísindamenn binda vonir við að virk efni í ætihvönn geti heft veirusjúkdóma á borð við alnæmi og fuglaflensu. Rannsóknir við Háskóla Íslands síðasta áratug hafa reyndar sýnt að hvönnin getur nýst gegn ýmsum kvillum. Ætihvönnin hefur verið notuð sem matjurt og lækningajurt frá upphafi Íslandsbyggðar og gamlar heimildir segja hana meðal annars hafa verið notaða gegn brjóstveiki og magakveisum og til að efla þrótt. Rannsóknir á virkum efnum hvannarinnar síðustu ár hafa skilað því að lyfjafyrirtækið Saga Medica framleiðir nú vörur sem innihalda efni úr fræjum og laufum ætihvannar. Má þar nefna hálsbrjóstsykur, fæðubótarefnið Anjelica og Saga Pro sem ku gagnast mönnum með góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli.  En svo gæti verið að veirudrepandi efni hvannarinnar nýtist til að hefta veirusjúkdóma eins og veiru sem veldur alnæmi og jafnvel fuglaflensu. Sigmundur Guðbjarnarson, prófessor í efnafræði við Háskóla Íslands, segir að hópur vísindamanna frá Spáni og Ítalíu hafi rannsakað efnið imperatorin sem sé að finna í miklu magni í hvönn. Þeir hafi rannsakað áhrif efnisins á HIV-veiruna og komist að því það geti heft vöxt veirunnar. Nú séu vísindamennirnir mjög spenntir að prófa þetta og fleiri skyld efni við meðhöndlun á alnæmissjúkum. Heimildir geta þess að hvönn hafi verið notuð á miðöldum gegn drepsóttum eða veirusýkingum. Spurður hvort þær séu skyldar fuglaflensunni sem sögð er vofa yfir núna segir Sigmundur að talið sé að spænska veikin hafi átt að rætur að rekja til fuglaflensuveiru sem stökkbreyttist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×