Innlent

Telur kaupleigu hagkvæmasta

Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag að endurnýja bæði varðskip og flugvél fyrir Landhelgisgæsluna. Gæslan telur hagkvæmast að gerðir verði kaupleigusamningar við endurnýjunina, þá fyrstu í þrjá áratugi. Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í dag að skip og flugvélar Landhelgisgæslunnar yrðu endurnýjuð. Fulltrúum dóms- og kirkjumálaráðherra og fjármálaráðherra verður falið að gera tillögur um kaup eða leigu á fjölnota skipi og eftirlitsflugvél og undirbúa málið. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir starfsmenn stofnunarinnar stolta og ánægða með frumkvæði og atorku Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra sem hafi komið þessu til leiðar. Undanfarin ár hefur verið undirbúin sérsmíði stórs varðskips fyrir Gæsluna og hefur málið oft verið rætt í ríkisstjórn. Talið er að það kynni að kosta allt að fjórum milljörðum. Könnun Gæslunnar hefur hins vegar leitt í ljós að nú er unnt að kaupa eða leigja varðskip til tíu ára fyrir um það bil tvo milljarða íslenskra króna. Þá er talið brýnt að ný flugvél komi í stað nærri 30 ára Fokker-vélar sem missir flughæfi við lok næsta árs en unnt er að kaupa eða leigja flugvél fyrir um það bil 1,8 milljarða króna. Talið er að afhending á skipi og flugvél verði ekki fyrr en eftir um tvö ár ef tilboð eru nýtt núna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×