Fékk ekki að hitta Fischer 2. mars 2005 00:01
Sæmundur Pálsson og Miyoko Watai, unnusta Bobby Fischer, fengu í gær ekki að hitta hann í innflytjendabúðunum þar sem Fischer er haldið. Sæmundur sagði í samtali við Fréttablaðið að þau hafi einungis fengið þær upplýsingar að af öryggisástæðum væri ekki hægt að heimsækja Fischer. Þau héldu að mögulega væri skýringin sú að sjónvarpstökulið var í för með Sæmundi og Miyoko, en þó væri ekki hægt að segja það með vissu. Enginn hafi fengið að hitta skákmeistarann í gær og hann taldi því mögulegt að aðrar ástæður lægju þar að baki. Vonandi fengist skýring á því í dag, hvers vegna af heimsókn gat ekki orðið. "Það var auðvitað leiðinlegt að geta ekki fengið að hitta hann. Sérstaklega vitandi það að hann talaði við kærustu sína kvöldið áður og hún sagði mér að hann væri mjög spenntur fyrir því að sjá mig." Fyrr um morguninn hafði Sæmundur hitt Þórð Ægi Óskarsson, sendiherra Íslands í Japan. Sæmundur segir að Þórður hafi rætt við Fischer í síma og viti um óþolinmæði Fischers gagnvart því að málið leysist. Þórður Ægir hafi hins vegar ekki rætt um að hitta Fischer. Eitt af því sem Sæmundur ræddi við sendiherrann var hvort ekki væri hægt að afhenda lögmanni Fischers vegabréfið, í stað þess að afhenda honum það persónulega. "Það er mín ósk og von til þess að pattstaðan leysist. Hann þarf vegabréf og dvalarleyfi til að losna úr innflytjendabúðunum, en þarf hins vegar að losna þaðan til að sækja vegabréfið og dvalarleyfið. Það gengur auðvitað ekki upp. Ég var mjög bjartsýnn á lausn þessa máls eftir að ég ræddi við Davíð á föstudag, en hann gat engu lofað mér." Sendinefnd á vegum stuðningsmanna Fischers hélt til Japan á þriðjudag og er von á þeim í dag. Hana skipa, auk Sæmundar Pálssonar, Garðar Sverrisson, fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags Íslands, Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur og Einar S. Einarsson, fyrrverandi forstjóri VISA. Mun sendinefndin halda blaðamannafund í Japan á morgun.
Fréttir Innlent Mest lesið Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslulög: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Innlent Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Innlent Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Innlent Öryggismál að eiga reiðufé heima fyrir „ef í harðbakkann slær“ Innlent Ríkið keypti nýjan sendiherrabústað á 750 milljónir Innlent „Auðvitað bregður fólki“ Innlent Inga endurvekur 25 metra regluna Innlent Stöðvaði miðasölu um leið og hann áttaði sig á stöðu mála Innlent Fádæma úrhelli á Ólafsfirði Innlent Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Innlent Fleiri fréttir Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslulög: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Fádæma úrhelli á Ólafsfirði Hildur er nýr formaður Almannaheilla Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Öryggismál að eiga reiðufé heima fyrir „ef í harðbakkann slær“ Um 100 skemmtiferðaskip í Vestmannaeyjum í sumar „Auðvitað bregður fólki“ Ríkið keypti nýjan sendiherrabústað á 750 milljónir Hlutfall barna sem beitti foreldra eða skylda ofbeldi tvöfaldaðist Strandveiðimenn huga að samstöðufundi við Austurvöll Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar og endurfrumsýning Brúðubílsins Skemmtiferðaskipi snúið vegna vinds „Djöflablístur“ stafi líklega af svölum nýbygginga Stöðvaði miðasölu um leið og hann áttaði sig á stöðu mála Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Tvöfalt fleiri Parkinson-sjúklingar eftir fimmtán ár Alvarlegum ofbeldisbrotum fjölgað á síðustu kvartöld „Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Mygla í Árnasafni: „Handritin eru örugg“ Inga endurvekur 25 metra regluna Bílastæðið rifið upp með rótum Hlýjasti maímánuður á landinu frá upphafi mælinga „Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Krefur Ríkisútvarpið um leiðréttingu Ekki ólíklegt að þingið fari nokkra daga fram yfir „Hef mikinn skilning á því að Víðir hafi gert þetta“ Horft til tillagna um að minni fyrirtæki verði undanskyld jafnlaunavottun Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Sjá meira