Innlent

Verðhækkun liggur í loftinu

MYND/Haraldur Jónasson
Í gær var algengasta verð á 95 oktana í sjálfsafgreiðslu 101.20 krónur á lítrann hjá stóru olíufélögunum þremur. Eftir fylgdi Express með 99.80 og ÓB og Egó með 99.70. Loks komu Atlantsolía með 97.20 á lítrann og Orkan með 97.10. "Það er hækkunarþörf," sagði Gunnar Skaptason hjá Orkunni í gær, en kvaðst ekki myndi hreyfa sig fyrr en aðrir hefðu hækkað. Orkan væri lægst og myndi vera það áfram. "Okkur er að takast að bíða með verðbreytingar þar til vísitala neysluverðs hefur verið reiknuð úr, sem þýðir að lán fólks lækka minna heldur en ella," sagði Hugi Hreiðarsson hjá Atlantsolíu. Hann vísaði til mikilla hækkana á mörkuðum í Evrópu að undanförnu og sagði allt eins líklegt að Atlantsolía myndi hækka eldsneytisverð í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×