Fela ekki lengur ólöglega vinnu 18. janúar 2005 00:01
Starfsmenn Samiðnar, sambands iðnfélaga, hafa verið að sjá mörg tilvik á undanförnum vikum, þar sem grunur leikur á að um ólöglega atvinnustarfsemi útlendinga sé að ræða. Finnbjörn A. Hermannsson segir að sú breyting hafi orðið, að áður hafi þessir ólöglegu menn unnið í öllum skúmaskotum, en nú séu þeir farnir að vinna fyrir opnum tjöldum. "Við erum búnir að fara á ótal marga vinnustaði síðan í desember," sagði hann. "Menn eru orðnir svo öruggir í þessu því það er aldrei hróflað við einu eða neinu. Nú eru þeir farnir að vinna á dagvinnutíma inni í almennum byggingum." Finnbjörn sagði, að Samiðn hefði í desember hafið könnun á þessari starfsemi með ólöglegt erlent vinnuafl og stæði hún fram á vorið. Hlutur erlenda vinnuaflsins væri aðeins hluti af þeirri könnun, því hún næði til þess hverjir væru almennt að vinna störf iðnaðarmanna. Hörgull væri á þeim þessa dagana og þá færu aðrir í störfin. Finnbjörn sagði að könnunin væri bundin við suðvesturhornið. Hefði verið farið á allmarga vinnustaði og málið verið kannað. Því yrði haldið áfram. Að þessari könnun lokinni ættu að liggja fyrir staðreyndir um hversu mikið væri af ólöglegu vinnuafli í byggingariðnaði á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Ef marka mætti það sem talað væri á vinnustöðum væri mjög mikið um þetta. "Við höfum ekki áhyggjur af stærri fyrirtækjum í þessu tilliti," sagði Finnbjörn. "Þau eru með sitt bókhald í lagi og leika ekkert svona hluti. Ef menn koma ólöglega inn í landið þá eru þeir vitanlega í svartri atvinnustarfsemi. Þeir taka laun sem ekki eru gefin upp. Stærri aðilar sem ætla að vera áfram á markaðinum bjóða sjálfum sér ekki upp á slíkt. Það eru þessir smákallar sem eru í þessum undanskotum. Þeir eru í smáverkum þar sem þeir geta látið hluti hverfa eins og vinnulaun og annað þess háttar. " Finnbjörn sagðist telja fulla ástæðu til að Alþýðusamband Íslands kæmi að þessu máli með Samiðn og athugaði fleiri greinar atvinnulífsins í þessu tilliti. Það hefði verið rætt við ASÍ, sem alls ekki hefði tekið illa í aðild að víðtækari athugun.
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira