Nærbuxum stolið í tugþúsundatali 7. apríl 2005 00:01
Eign þvottahúss spítalanna, nærbuxum með þessari áletrun, er stolið í tugþúsundatali ár hvert. Svo virðist sem ekkert fái stöðvað þessa gripdeild sem kostar skattborgara milljónir króna. Skilaboð til sjúklinga á hurð þvottaherbergis sængurkvennadeildar Landsspítalans við Hringbraut segja að tuttugu þúsund stykki af nærfatnaði séu keypt inn fyrir sjúkrahúsið árlega. Bent er á að slíkt magn kosti mikla peninga og er þeirri spurningu varpað fram hvort sjúklingar fari heim í nærfatnaði merktum þvottahúsum sjúkrahúsanna. Ljósmæður segjast gjarnan sjá slíkar nærbuxur í notkun þegar þær fara í heimavitjun. Það telst nokkuð sérstakt þar sem nærfatnaður sem þessi hefur hingað til ekki talist til hátísku. Eins eru til dæmi um að sjúklingar hafi komið í nærfatnaði frá sjúkrahúsunum þegar þeir hafa mætt til skoðunar þannig að ljóst er að einhverjir finna not fyrir nærfötin að sjúkrahúsdvöl lokinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Fleiri fréttir Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Búast við gasi á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Kvenfólkið í Eyjum bjargaði deginum Skinkur og Sykurpabbar skemmta sér á Egilsstöðum Blússandi stemning á harmonikkuhátíð á Borg Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Stígvélaskortur í Eyjum og brekkusöngur í Kópavogi Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnudags Sjá meira