Óþreyjufullar eftir hrútnum 20. janúar 2005 00:01
Kindurnar í Suðurey í Vestmannaeyjum eru orðnar svo óþreyjufullar eftir að hrúturinn komi til þeirra úr landi nú á fengitímanum að þær hlaupa fram klettabrúnirnar í hvert skipti sem þær heyra í báti sigla hjá, í von um að þar sé kavalerinn um borð á leið til þeirra. 25 kindur hafa vetursetu í eynni. Kindur eru í fleiri úteyjum og er venja að ferja hrúta út í eyjarnar á jólaföstunni en þá hefst fengitíminn og lömbin koma undir. Með harðfylgi tókst að koma hrútum út í hinar eyjarnar 9. desember en þá og síðan hefur brimað svo mikið við Suðurey að ekki hefur verið viðlit að lenda þar til að koma hrútnum í land. Eyjabændur í Suðurey ráðgera nú leiðangur á björgunarskipinu Þór um helgina og á að freista þess að koma hrútnum upp á svonefndan Steðja í lendingunni og hjálpa honum síðan áleiðis upp á eyjuna. Annars segja eyjabændur að þótt hrútarnir séu stundum smeykir við klifrið til að byrja með, þá gleymist þeim óttinn á svipstundu ef þeir heyra jarmað að ofan og taki þeir þá strikið upp. Og víst er að þeir eru í góðu formi til þess því eyjabændur staðhæfa að hrútarnir haldi í við sig með fæði síðustu dagana fyrir fengitímann til að vera í toppformi þegar þar að kemur. Þá sé ekki einu sinni hægt að freista þeirra með uppáhaldsgóðgæti, svo staðfastir séu þeir í að standa sig þegar til kemur. Ef leiðangurinn um helgina fer ekki að óskum er hætt við að engin lömb fæðist í Suðurey í vor. Ámóta illa horfði um svipað leyti fyrir nokkrum árum en þá lenti þyrla Landhelgisgæslunnar óvænt í Eyjum og náðust samningar í snatri við áhöfnina um að skutla hrútnum út í Suðurey með þyrlunni og þá gekk allt upp. En nú stefnir sem sagt á að Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaupi undir bagga.
Fréttir Innlent Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira