Neytendasamtökin styrkja prófmál 18. janúar 2005 00:01
Stjórn Neytendasamtakanna hefur ákveðið að samtökin styðji fjárhagslega við bakið á skaðabótamáli einstaklings gegn olíufélögunum vegna verðsamráðs þeirra. Jóhannes Gunnarsson, formaður samtakanna, segir að þau geti ekki sjálf farið í mál fyrir hönd neytenda. Þess vegna hafi þessi leið verið valin og það hafi verið óumdeilt í stjórninni. Hann segir að nú séu samtökin að meta hugsanlegt tjón almennings af verðsamráðinu. Hann hvetur fólk sem á eldsneytisnótur frá árinu 1995 til 2002 til að hafa samband við Neytendasamtökin, bæði til þess að hjálpa við að meta tjónið og vegna hugsanlegra málaferla. Enn er ekki búið að ákveða fyrir hönd hvaða einstaklings málið verði höfðað. "Það er verið að fara yfir þau gögn sem komin eru og ákvörðun um það verður tekin á næstunni." Jóhannes segir erfitt að giska á hvað málaferlin muni kosta Neytendasamtökin. "Málið er hins vegar það alvarlegt að við förum í þetta óhikað. Olíufélögin fóru þannig með neytendur að það er ekki hægt að standa hjá aðgerðalaus. Það er búið að hafa af þeim mikla fjármuni. Ég tala nú ekki um ef við tökum óbeint tjón vegna hækkunar neysluvísitölu sem hefur leitt til hækkunar á verðtryggðum skuldum heimilanna. Það tjón verður aldrei sótt í sjóði félaganna þannig að neytendur eiga aðeins möguleika á því að ná hluta af því tjóni til baka sem þeir hafa orðið fyrir." Eggert B. Ólafsson lögmaður mun sjá um málflutning í málinu fyrir hönd neytenda. Hann segir að nú sé unnið að því að forma kröfugerð og málið verði þingfest á næstunni. "Það verður gert á næstu vikum. Við byrjum á því að senda olíufélögunum kröfubréf," segir Eggert. "Olíufélögin hafa því tækifæri til að greiða tjónið án þess að það fari fyrir dómstóla."
Fréttir Innlent Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira