Gengi krónunnar í sögulegu hámarki 18. janúar 2005 00:01 MYND/Vísir
Gengi krónunnar náði sögulegu hámarki í gær, þegar gengisvísitalan mældist lægri en hún hefur verið í fjögur og hálft ár. Á rúmum þremur árum hefur gengi krónunnar hækkað um meira en þriðjung. Í Morgunkorni Íslandsbanka kemur fram að gengisvísitalan hafi farið niður í 111,4 í lok dags í gær og hefur hún ekki verið lægri í fjögur og hálft ár. Gengisvísitalan er mælikvarði á stöðu krónunnar og því lægri sem hún er því sterkari er krónan. Frá því að gengi krónunnar fór lægst í lok árs 2001 hefur það hækkað um ríflega þriðjung. Á sama tímabili hefur dollarinn farið úr rúmum 110 krónum niður í 62 og evran úr 97 krónum niður í 81 krónu. Þessar hræringar hafa leitt til þess að innflutningur hefur aukist en á móti hefur dregið úr vexti útflutnings. Þá hefur breytingin á gengi krónunnar átt þátt í að skapa þann mikla viðskiptahalla sem nú er á íslensku efnahagslífi. Á móti hafa erlendar skuldir hins vegar lækkað í krónum talið og þar með vaxtagreiðslur af þeim. Gengishækkun krónunnar hefur einnig átt sinn þátt í því að verðbólgan hefur ekki verið hærri en nú á tímabilinu frá 2001. Munurinn á innlendum og erlendum skammtímavöxtum hefur aukist að undanförnu og er það ein af ástæðunum fyrir þessari miklu hækkun á gengi krónunnar. Nú stendur þriggja mánaða vaxtamunur í ríflega 6 prósentustigum og hefur aukist um helming á einu ári. Þessi mikli munur hefur hvatt innlenda aðila til að taka lán í útlöndum. Mikið hefur verið um slíkar lántökur að undanförnu og á það stóran þátt í hækkun á gengi krónunnar. Rekja má muninn á innlendum og erlendum vöxtum að nokkru til aðgerða Seðlabankans sem hefur hækkað stýrivexti sína um tæplega þrjú prósent á umræddu tímabili.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira