Flokkspólitík hlaupin í málið 10. apríl 2005 00:01
Borgaryfirvöld hafa sem kunnugt er boðið Háskólanum Í Reykjavík framtíðarlóð undir starfsemi sína á umræddu svæði í nágrenni Reykjavíkurflugvallar en Garðbæingar hafa líka hug á að fá Háskólann til sín og hafa boðið fram lóð í því skyni. Í könnun Gallups voru rúmlega 1300 einstaklingar í Reykjavík á aldrinum 16-75 ára spurðir hvort þeir vildu að Háskólinn í Reykjavík fái að byggja á svæðinu eða hvort það verði þróað áfram sem útivistar- og afþreyingarsvæði. Sem fyrr segir sögðust 73 af hundraði svarenda vilja nýta svæðið sem útivistarsvæði frekar en að þar verði byggt. Nokkur munur er á afstöðu kynjanna í þessum efnum en 80 prósent kvenna eru hlynnt útivistarsvæði þarna en 67 prósent karla. "Mér finnst spurningin í þessari könnun mjög gildishlaðin og markmiðið greinilega að fá fram ákveðna niðurstöðu", segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Hún segir bullandi flokkspólitík greinilega hlaupna í þessa umræðu og að ýmsir áhrifamiklir Sjálfstæðismenn séu augljóslega staðráðnir í að koma Háskólanum í Reykjavík til Garðabæjar, hvað sem það kosti. "Skýringin á þessu er einfaldlega sú að þar eru stjórnvöld sem eru Sjálfstæðisflokknum þóknanleg", segir borgarstjóri. Kristrún Lind Birgisdóttir hjá Tíkin.is segir vissulega mega deila um orðalag spurningarinnar. "Það sem við leggjum áherslu á með þessari könnun er að við viljum að hlustað sé á raddir borgarbúa í þessu máli og lítum svo á að könnunin leiði vilja þeirra til þess ótvírætt í ljós", segir hún.
Fréttir Innlent Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Sjá meira