Innlent

Varðskip og flugvél endurnýjuð

Ríkisstjórn Íslands samþykkti í dag að bæði varðskip og flugvél fyrir Landhelgisgæsluna yrðu endurnýjuð. Fulltrúum dóms- og kirkjumálaráðherra og fjármálaráðherra verður falið að gera tillögur um kaup eða leigu á fjölnota skipi og eftirlitsflugvél og undirbúa málið fyrir lokaákvörðun ríkisstjórnarinnar. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir starfsmenn stofnunarinnar stolta og ánægða með frumkvæði og atorku Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra sem hafi komið þessu til leiðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×