Gula spjaldið á loft 14. apríl 2005 00:01 "
Virðulegi forseti, ég hef hér orðið," sagði Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um störf Alþingis á miðvikudag. Þetta var meira en góðu hófi gegndi að mati Halldórs Blöndal þingforseta, sem vítti þingmanninn. Þingvítur voru fáheyrðar og aðeins að finna í sögubókum fram til ársins 2002 þegar Halldór Blöndal vítti Ögmund Jónasson, Vinstri grænum, fyrir að segja: "Það þekkir hann alla vega, háttvísina, hæstvirtur forseti". Halldór var hvattur af framsóknarþingmönnunum Magnúsi Stefánssyni og Valgerði Sverrisdóttur til að víta Ögmund og tók hann þau á orðinu. Ári síðar, í febrúar 2003, sagði Lúðvík Bergvinsson: "Virðulegur forseti ætti heldur ekki að misnota stöðu sína í forsetastóli". Starfslok fyrrverandi forstjóra Símans voru til umræðu og kallaði Lúðvík orð sín úr sæti sínu, líkt og Ögmundur gerði ári áður. Á miðvikudag stóð Lúðvík hins vegar í pontu. Eldri þingvítur voru rifjaðar upp þegar vítaskeiðið hið síðara hófst í febrúar 2002. Lögðust fróðir menn og minnugir yfir söguna og fundu þrjú tilvik um og upp úr miðri síðustu öld. Árið 1950 var Magnús Kjartansson varaþingmaður Sósíalistaflokksins víttur fyrir meiðandi ummæli, Páll Zóphóníasson þingmaður Framsóknarflokksins var víttur 1953 fyrir að blóta í ræðu og 1957 var Sigurður Bjarnason Sjálfstæðisflokki víttur fyrir að rægja framsóknarmenn. Í fundarsköpum flestra sveitarfélaga landsins er svo að segja samhljóða ákvæði þar sem kveðið er á um vítur líkt og í þingsköpum Alþingis. Eftir því sem næst verður komist hefur ákvæðinu ekki verið beitt á þeim bæjum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Fleiri fréttir Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur í fyrsta sinn frá kosningum Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Sjá meira