Sættir náðust á síðustu stundu 14. apríl 2005 00:01
Sættir hafa náðst í deilum milli sjálfstæðismanna í sveitarstjórn Skagafjarðar. Með því var komið í veg fyrir að vantraust yrði samþykkt á Gísla Gunnarsson forseta sveitarstjórnar og oddvita Sjálfstæðismanna. Meirihluti Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna í Skagafirði heldur því velli enn um sinn. Séra Gísli Gunnarsson boðar hins vegar brotthvarf sitt af sviði stjórnmálanna þegar þessu kjörtímabili lýkur að ári, en hann hefur þá verið oddviti D-listans í átta ár. "Ég reikna alls ekki með því að ég sækist eftir því að leiða lista Sjálfstæðismanna né að vera á lista í næstu kosningum, segir hann og kveðst ætla að einbeita sér að prestsstörfum en hann er starfandi sóknarprestur í Glaumbæ. Deilur spruttu nýverið milli Gísla og Bjarna Maronssonar eins þriggja fulltrúa Sjálfstæðismanna í sveitarstjórn og oddvita flokksins, eftir að Gísli hafði úrskurðað Bjarna vanhæfan til þátttöku í afgreiðslu fundargerðar. Í kjölfarið lýsti Bjarni því yfir að hann styddi Gísla ekki lengur sem forseta og hefði meirihlutinn því fallið að óbreyttu. Á fundi Sjálfstæðismanna í Skagafirði í fyrrakvöld tókst hins vegar að bera klæði á vopnin og þar með var lífi meirihlutans borgið um sinn að minnsta kosti. Deilendur sættast á að hæfi Bjarna Maronssonar í áðurgreindu máli hafi orkað tvímælis en að Gísla hafi jafnframt borið að leggja hæfið í dóm fundarins í stað þess að úrskurða um það sjálfur. "Það var mín ákvörðun að þiggja þessar sættir í málinu bæði vegna þess að Gísli viðurkenndi að hafa misbeitt valdi sínu en líka er stutt er eftir af kjörtímabilinu og óvíst hvað við tæki í sveitarstjórn ef meirihlutinn félli", segir Bjarni Maronsson.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fleiri fréttir Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Sjá meira