Saklaus fórnarlömb verðstríðs 10. mars 2005 00:01
Samkeppnisstofnun hefur fengið fyrirspurnir vegna verðstríðs lágvöruverslana í matvöru. Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs, segir að ákvörðun um hvort eða hvernig brugðist verði við fyrirspurnunum hafi ekki verið tekin enda verðstríðið nýhafið. "Forsvarsmenn annarra matvöruverslana hafa spurst fyrir um hvort leyfilegt sé að gefa matvöru úr verslunum eða selja langt undir kostnaðarverði. Svo hafa smærri matvöruverslanir verið að velta fyrir sér afkomu sinni," segir Guðmundur: "Þær eru saklaus fórnarlömb stríðs á milli stærri aðila." Þórður Björnsson, eigandi hverfisverslananna Teigakjörs, Hlíðakjörs og Sunnubúðarinnar, segir að hann sé uggandi yfir hinni hörðu samkeppni risanna en rólegur og vilji ekki aðgerðir Samkeppnisstofnunar. Hann selji helmingi minni mjólk en áður. Önnur sala hafi lítið breyst. "Við verðum að bregðast við samkeppninni með betri þjónustu. Við erum til dæmis farnir að keyra vöruna heim," segir Þórður. Guðmundur segir ekki ólöglegt að selja vörur undir kostnaðarverði. "Hins vegar getur það verið mjög alvarlegt brot á samkeppnislögum reyni fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu að drepa af sér samkeppni með vörum undir kostnaðarverði," segir hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira