Úlpan hafin til flugs 8. desember 2005 18:15 Rokksveitin Úlpa er að gefa út sína aðra plötu. Nefnist hún Attempted Flight by Winged Men.
Hafnfirska rokksveitin Úlpa heldur útgáfutónleika á fimmtudag vegna annarrar plötu sinnar, Attempted Flight by Winged Men, sem kom nýverið út á vegum 12 Tóna. Fyrsta plata Úlpu, Mea Culpa, kom út fyrir fjórum árum og því hafa margir beðið nýju plötunnar með mikilli eftirvæntingu. Vinnsla við plötuna hófst undir lok 2002 en henni lauk ekki fyrr en í haust. Að sögn Halla trommara urðu ýmsir atburðir til þess að platan tafðist. "Við vorum að gera þetta sjálfir og það var erfitt að fá fólk til að aðstoða okkur við upptökur," segir Halli. "Við áætluðum líka minni tíma heldur en raunin varð. Síðan lentum við í því að missa harða diskinn í algjört tjón. Við urðum að senda hann til London í "rehab" og um tíma héldum við að við værum búnir að tapa plötunni. Síðan komu nokkrir tímapunktar þar sem við fórum að gera eitthvað annað." Á þessum tímapunktum fór Úlpa meðal annars í stutta tónleikaferð um austurströnd Bandaríkjanna með hljómsveitinni Lake Trout, sem spilaði á Innipúkanum í sumar. Einnig fór sveitin tvisvar sinnum til Færeyja, þrisvar til Danmerkur og til Austurríkis, Þýskalands og London, á milli þess sem hún vann plötuna. Halli segir að eins og gefur að skilja hafi verið meira legið yfir nýju plötunni en þeirri. Hún nær einnig yfir lengra tímabil. Fyrsta lagið hafi verið samið fyrir hátt í fimm árum en það nýjasta nú í sumar. Nafnið á plötunni er einmitt vísun í það hversu erfiðlega gekk að vinna plötuna. "Þetta er bjagað nafn af frægu málverki sem við rákumst á. Okkur fannst þetta passa svo vel við það sem við vorum að gera og hvernig ferlið á plötunni var því við vorum alltaf að hefja hana til flugs," segir hann. Útgáfutónleikarnir á fimmtudag verða haldnir í Þjóðleikhúskjallaranum og hefjast klukkan 23.00. Miðaverð er 500 krónur en þeir sem mæta í Millet-úlpum fá frítt inn. Auk þess fá þeir fjórir fyrstu sem gefa hljómsveitarmeðlimum Millet-úlpur nýju plötuna áritaða og smáskífu að launum. "Okkur langar í svona úlpu sjálfir. Þetta var orðinn svo langur og þreyttur brandari að við ákváðum að snúa honum," segir Halli og hlær.
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Fangelsi undir Vatnajökli Leikjavísir Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira