Lífið

Haltur leiðir blindan á leiðarenda

Íslandsgöngu „hins halta“ og „hins blinda“, með yfirskriftinni „Haltur leiðir blindan“, lýkur á morgun. Þeir Guðbrandur Einarsson og Bjarki Birgisson munu ganga frá Hljómskálanum klukkan 16.30 og koma á Ingólfstorg klukkan 17. Þar munu félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, og Alfreð Þorsteinsson, forseti borgarstjórnar, taka á móti þeim ásamt fleirum. Eftir teygjuæfingar, sem allir geta tekið þátt í, verða skemmtiatriði. Með göngunni vildu þeir félagar vekja athygli á málefnum barna með sérþarfir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.