Aðstoðarritstjórinn telur fréttamenn hafa brotið siðareglur BÍ 26. mars 2005 00:01
Jón Kaldal, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, telur fréttamenn Stöðvar 2 hafa brotið gegn siðareglum Blaðamannafélags Íslands með framgöngu sinni í fyrrakvöld þegar Bobby Fischer kom til landsins. Í leiðara Fréttablaðsins, "Sjálfsmark fréttastofu" gagnrýnir Jón Kaldal framkomu þeirra fulltrúa Stöðvar 2 sem komu að beinni útsendingu frá viðburðinum, ekki síst þátt fréttastjóra Stöðvar 2, Páls Magnússonar. Jón Kaldal segir í leiðaranum að fréttastofa Stöðvar 2 hafi "sölsað undir sig komu Bobby Fischer til Íslands og ekki aðeins ýtt til hliðar öðrum fjölmiðlum heldur einnig þeim mönnum sem hafa lagt á sig mikla vinnu til þess að fá Fischer lausan úr varðhaldi í Japan og greiða götu hans hingað til lands." Þá segir Jón Kaldal að framkoma fréttamannanna Kristján Más Unnarssonar og Ingólfs Bjarna Sigfússonar í beinni útsendingu fréttastofunnar hafi verið þeim til minnkunnar og hljóti að vera klárt brot á 1. grein siðareglna Blaðamannafélags Íslands. Síðar í leiðaranum segir Jón Kaldal; "þáttur fréttastjórans Páls Magnússonar í þessari uppákomu er kapítuli útaf fyrir sig. Hann stígur inn í atburði sem þátttakandi og gerandi í stað þess að standa fyrir utan þá og flytja af þeim fréttir. Og sá gjörningur að nýta sér kostun Baugs (aðaleiganda þess fjölmiðlafyrirtækis sem Páll starfar fyrir) á einkaþotu undir Fischer til þess að skapa sér forskot á frétt, er auðvitað dæmi um svo undarlega dómgreind að maður verður nánast orðlaus." Rétt er að taka fram að bæði Fréttablaðið og Stöð 2 eru í eigu sömu aðila. Hér má lesa grein Jóns Kaldal í heild
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Erlent Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla Innlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár Innlent „Þetta eru ekki góðar móttökur“ Innlent Hver var Charlie Kirk? Erlent Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Innlent Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Erlent Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Innlent Fleiri fréttir Helgarlokanir leiði fólk til þess að nota efnin í bílakjöllurum Vinirnir vestanhafs hafi áhyggjur af stigmögnun Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Samdráttur eftir fjögurra ára vaxtarskeið Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir Morðið á Kirk vekur upp umræðu um málfrelsi Kaldavatnslaust í hluta Laugardalsins Stefán Einar og Sigmar ræða skautun í kjölfar voðaverks Fjórtán geta búist við sekt Alvarlegt atvik kom upp í Heiðarskóla „Þetta eru ekki góðar móttökur“ E.Coli staðfest í neysluvatninu á Stöðvarfirði „Froðuhagnaður“ Félagsbústaða haldi borginni á floti Launahækkanir þungur baggi á borginni Trump nýti sér morðið til frekari valdtöku Fjörugar umræður um fjárlög: Hóflegur útgjaldavöxtur, vonbrigði eða della? Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Tekist á um fjárlagafrumvarpið og morðið á Charlie Kirk Tilkynningum um „spoofing“ fjölgað verulega síðustu ár „Súrrealísk og skelfileg upplifun“ Bein útsending: Daði Már mælir fyrir fjárlögum næsta árs Ofbeldi foreldra gegn börnum jókst um nær helming 3,7 stiga skjálfti í Árnesi Ákall um íslenskukennslu: „Oft var þörf en nú er nauðsyn“ Vilja styttu af Gunnari í Gunnarsbrekku Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Sjá meira