Kópavogur skoðar frían leikskóla 31. mars 2005 00:01
Kópavogsbær skoðar að veita barnafjölskyldum gjaldfrjálsan leikskóla, segir Gunnar I. Birgisson formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar. "Við höfum ekki ákveðið hvenær né hverjar áherslunar verða," segir Gunnar. "Það er ljóst að gjaldfrjáls leikskóli kostar mikið en einnig er ljóst að bæjarfélögin greiða nú þegar sjötíu prósent með leikskólunum," segir Gunnar. Ákvörðun hafi verið tekin áður en Reykjavíkurborg lagði fram hugmyndir sínar. Niðurstaða um hvort af verði sé ekki fengin. Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri Seltjarnarnessbæjar segir að ekki hafi verið rætt um gjaldfrjálsan leikskóla þar. Það verði eflaust gert. Garðabær, Hafnarfjörður og Mosfellsbær vilja að viðræður um að lækka leikskólakostnaðinn fari fram við ríkið. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir ákvörðun Reykjavíkurborgar að veita gjaldfrjálsan leikskóla eftir rúm fimm ár ýta við viðræðum milli sveitarfélaga og ríkisins. Í Hafnarfirði verði vel fylgst með þróun málanna. "Ég lít svo á að þessi mál verði aldrei kláruð af alvöru nema um það sé samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga. Það er forsendan fyrir gjaldfrjálsum leikskóla," segir Lúðvík. Ragnheiður Ríkarðsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir ákvörðun Reykjavíkurborgar óheppilega: "Ég tel að samningsstaða sveitarfélga við ríkið hafi veikst við útspil Reykjavíkurborgar." Ákvörðun bæjaryfirvalda bíði betri tíma. Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri Garðabæjar segir kosningaloforð sem meirihlutinn hafi gefið fyrir síðust kosningar verða uppfyllt áður en ný loforð séu gefin. "Okkur finnst ekki sanngjarnt gagnvart bæjarbúum að lofa einhverju hér og nú sem gerist í óráðinni framtíð þegar enginn veit hver verður við völd," segir Ásdís. Ásdís segir alla flokka á Alþingi hafa rætt hve mikilvægt sé að lækka leikskólakostnaðinn. Það hafi Ríkisstjórnarflokkarnir einnig gert en óformlega: "Mér finnst mjög mikilvægt að sveitarfélögin hagi sér ekki með þeim hætti að þau grafi undan samningstöðu sveitarfélaganna."
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira