Vorið kemur fyrr á hverju ári 29. mars 2005 00:01 "
Við höfum tekið eftir því undanfarin fimm eða sex ár að vorkoman er alltaf fyrr á ferðinni," segir Aðalsteinn Sigurgeirsson, forstöðumaður Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Hann segir aðeins farið að örla á brumi hjá sumum trjátegundum. Eva G. Þorvaldsdóttir, forstöðumaður Grasagarðs Reykjavíkur, segir vorplöntur vera komnar miklu fyrr af stað en áður var talið eðlilegt. Þetta sjáist á vorlaukum sem þegar séu farnir að blómgast og þá séu krókusarnir komnir á skrið, svo og vorboðinn og skógarblámi. Eva bendir á að blómgun nú sé þremur vikum fyrr á ferðinni ef litið sé á blómgunartölur frá árinu 2002. Hún segist þó ekki hafa áhyggjur af þróuninni, það verði bara að taka henni. Að mörgu leyti sé hún ánægjuleg fyrir ræktunarfólk því hægt sé að prófa suðlægari tegundir, hins vegar sé það erfitt vegna þess að alltaf geti komið frostakafli. Einnig sé neikvætt að hafa ekki snjó á veturna þar sem hann hlífi plöntunum. Þá hafi umhleypingar áhrif á plöntur þegar jarðvegur er auður og litlar plöntur lyftist upp. Aðalsteinn hefur svipaða sögu að segja og telur að hlýrri vetur auki hættuna á skemmdum á trjágróðri vegna vorhreta en á síðustu tveimur vorum urðu skemmdir á sumum trjátegundum. Hins vegar segir Aðalsteinn að á móti komi að sumrin séu löng og mun hlýrri en áður sem geri skemmdum trjágróðri kleift að jafna sig. Hann segir breytingar í veðurfari geta haft áhrif á framtíðarval á trjátegundum til ræktunar þar sem ákveðnar trjátegundir eins og rússalerki og síberíulerki fari halloka. Aðalsteinn segist ekki hafa áhyggjur af þróun veðurfars fyrir trjágróður á Íslandi þar sem aðlögunargetan sé mikil hjá trjágróðrinum og í skógræktinni. Örlítil hækkun á hita sé bara til að bæta lífsskilyrði trjánna. "Séð frá þessu mjög þrönga sjónarhorni skógræktarinnar þá er gott að það hlýni," segir Aðalsteinn.
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira