Ómerkileg, óheiðarleg og staðlaus fullyrðing aðstoðarritstjóra 29. mars 2005 00:01 "
Ég er reyndar enn með ónot yfir því að nokkur blaðamaður yfirleitt geti skrifað leiðara á borð við þann sem Jón Kaldal birti í Fréttablaðinu á laugardaginn var," segir Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2 í grein sem birtist í Fréttablaðinu og hér á Vísi í dag. Páll segir Jón Kaldal þverbrjóta siðareglur BÍ með því sem hann kallar ómerkilega, óheiðarlega og staðlausa fullyrðingu um vinnubrögð fréttamanna Stöðvar 2. Jón Kaldal skrifaði harðorðan leiðara í Fréttablaðið á laugardag vegna framgöngu fréttamanna Stöðvar 2 á Reykjavíkurflugvelli við komu Bobbys Fischers. Jón sagði að fréttastofa Stöðvar 2 hefði "sölsað undir sig komu Bobby Fischer til Íslands og ekki aðeins ýtt til hliðar öðrum fjölmiðlum heldur einnig þeim mönnum sem hafa lagt á sig mikla vinnu til þess að fá Fischer lausan úr varðhaldi í Japan og greiða götu hans hingað til lands." Þá sagði í leiðaranum að framkoma fréttamanna Stöðvar 2 í beinni útsendingu fréttastofunnar hefði verið þeim til minnkunnar og hljóti að vera klárt brot á 1. grein siðareglna BÍ. Þátt fréttastjóra Stöðvar sagði Jón Kaldal kapítula útaf fyrir sig. Páll Magnússon svarar Jóni fullum hálsi í grein sinni. "Eftir að hafa tekið uppspuna Einars S. Einarssonar, um gang mála við komu Bobbys Fischers til landsins, góðan og gildan - þrátt fyrir að hann hafi verið marghrakinn af öllum sem til þekktu - heldur Jón Kaldal því fram án rökstuðnings, að tiltekinn fréttamaður Stöðvar 2 hafi logið að áhorfendum. Nú ég veit með fullri vissu að það gerði fréttamaðurinn auðvitað ekki. Eftir stendur þessi ómerkilega, óheiðarlega og staðlausa fullyrðing Jóns Kaldals, sem sjálf þverbrýtur einmitt þá 1.grein siðareglna Blaðamannafélagsins, sem vitnað er til í leiðaranum," segir Páll m.a. og vísar á bug öllum fullyrðingum um óeðlileg afskipti af móttökuathöfn Bobbys Fischers og einnig því að Stöð 2 hafi nýtt sér kostun Baugs á einkaþotu undir Fischer, til að skapa sér forskot á frétt. "En úr því að Jón Kaldal er svona beyglaður af þessu eignarhaldi verður hann að upplýsa lesendur Fréttablaðsins um hvaða áhrif það hefur á umgengni og umfjöllun blaðsins um Baug. Er hún meiri eða minni? Jákvæðari eða neikvæðari? Satt best að segja finnst mér að Jón Kaldal ætti af umhyggju fyrir sjálfsmynd sinni sem blaðamaður að reyna að gleyma því sem fyrst að hafa skrifað þennan leiðara. Svo ætti Jón að sjá sóma sinn í því að biðja fyrrnefndan fréttamann afsökunar á að hafa vænt hann um lygi. Ég reikna hins vegar ekki með því að Jón Kaldal geri það - og hafi hann þá skömm fyrir," segir Páll í grein sinni. Hér má lesa grein Páls Magnússonar í heild sinni.Leiðari Jóns Kaldal í Fréttablaðinu 26.mars
Fréttir Innlent Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Erlent Fleiri fréttir Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Sjá meira