Með blaðamann á upphandleggnum 1. nóvember 2005 07:00
Blaðið The Reykjavík Grapevine stóð fyrir mikilli Airwaves-útgáfu á dögunum og fékk til liðs við sig merka penna frá virtum bandarískum tímaritum. Þeir skemmtu sér mjög vel á tónlistarhátíðinni og voru hrifnir af landi og þjóð. Blaðamaðurinn Christian Hoard, frá Rolling Stone, gerði veðmál við ritstjóra Details, Genevieve Roth, á meðan dvöl þeirra stóð um að hún gæti ekki torgað átta íslenskum pylsum með öllu. "Roth, sem er tæp fimmtíu kíló á þyngd og var að æfa fyrir New York maraþonið, tók veðmálinu og skoraði á Hoard að fá sér orðið "BLAÐAMAÐUR" húðflúrað á handlegginn á sér ef hún gæti klárað pylsurnar," útskýrir ritstjóri Grapevine, Bart Cameron. Roth var einmitt að skrifa grein nýverið um nýja bylgju húðflúra í New York sem hún kallar "clever tattoos" eða snjöll tattú og íslenska orðið blaðamaður þótti greinilega yfirmáta snjallt. Smávaxni ritstjórinn kláraði pylsurnar átta og þrátt fyrir að hafa unnið veðmálið skellti hún sér líka á blaðamannshúðflúrið. Ekki færri en fjórir erlendir blaðamenn flykktust á eftir þeim skötuhjúum til Fjölnis tattú á Laugavegi 54 og fengu sér öll orðið "blaðamaður" á handlegginn, þar á meðal blaðamenn Esquire og NME. "Svo fengu þrír Grapevine-menn sér tattúið líka," segir Bart Cameron glaðbeittur. Að sögn Fjölnis á húðflúrsstofunni Studio 54 hefur þetta verið mjög vinsælt í Bandaríkjunum. "Þetta byrjaði á götunni og í gengjunum og varð svo tískufyrirbæri. Þessi bylgja er að ná vissri fótfestu hér og margir sem láta tattúvera nöfn á sig. Það er allt frá nöfnum á foreldrum og systkinum upp í ljóð og allskyns frasa á erlendum málum." Hvert er furðulegasta orðið sem Fjölnir hefur húðflúrað á fólk? Hann skellir upp úr. "Það er án efa orðið blaðamaður." Sá enginn eftir þessu uppátæki þegar Airwaves var yfirstaðið? "Nei, alls ekki," segir Bart Cameron. "Fólki í New York finnst mjög kúl að vera með íslenskt orð á handleggnum sem enginn skilur nema örfáir innlimaðir. Auk þess er þetta fínasti minjagripur um dvölina á Íslandi."
Menning Mest lesið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Fleiri fréttir Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Sjá meira