Lífið

Skröggur í íslenskri baðstofu

Jólaævintýri Hugleiks. Þetta er viðamesta uppfærsla Hugleiks í langan tíma.
Jólaævintýri Hugleiks. Þetta er viðamesta uppfærsla Hugleiks í langan tíma.

Leikfélagið Hugleikur frumsýnir í kvöld Jólaævintýri Hugleiks. Um er að ræða leikgerð á Jólaævintýri Dickens sem er fyrir löngu orðið sígilt. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðfangsefni leikhússfólks síðan hún kom út árið 1843. Þetta er jafnframt viðamesta uppfærsla Hugleiks síðan söngleikurinn Kolrassa sló í gegn 2002.

Hugleikur hefur flutt leikritið úr Lundúnaþokunni yfir í íslenskt sveitaumhverfi. Skröggur gamli er nú kominn inn í íslenska 19. aldar baðstofu, Tommi litli leikur sér með legg og skel og draugarnir þrír eru skottur og mórar.

"Þetta er gömul hugmynd sem kviknaði á milli tveggja höfundanna fyrir mörgum árum," segir Þorgeir Tryggvason, einn af höfundum verksins. "Þetta er saga sem er til í ótal útgáfum sem margir hópar hafa gert að sínum. Frægasta dæmið er kannski Prúðuleikararnir og síðan var þetta líka í gömlum Black Adder þætti og í Fame meira að segja. Okkur langaði að vera með í þessu og komumst að því að hliðstæðurnar við Ísland eru endalaust skemmtilegar," segir hann.

Auk Þorgeirs eru höfundar þau Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Sigrún Óskarsdóttir og Snæbjörn Ragnarsson. Með hlutverk Skröggs fer Björn Thorarensen en hljómsveitin Forynjur og draugar sér um undirleik. Plata með tónlist við verkið hefur þegar verið gefin út. Jólaævintýri Hugleiks hefst klukkan 20.00 í kvöld í Tjarnarbíói. Sýningar standa yfir fram í miðjan desember og síðan verða tvær sýningar á milli jóla og nýárs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.