Lífið

Með blaðamann á upphandleggnum

Blaðið The Reykjavík Grapevine stóð fyrir mikilli Airwaves-útgáfu á dögunum og fékk til liðs við sig merka penna frá virtum bandarískum tímaritum. Þeir skemmtu sér mjög vel á tónlistarhátíðinni og voru hrifnir af landi og þjóð. Blaðamaðurinn Christian Hoard, frá Rolling Stone, gerði veðmál við ritstjóra Details, Genevieve Roth, á meðan dvöl þeirra stóð um að hún gæti ekki torgað átta íslenskum pylsum með öllu.

"Roth, sem er tæp fimmtíu kíló á þyngd og var að æfa fyrir New York maraþonið, tók veðmálinu og skoraði á Hoard að fá sér orðið "BLAÐAMAÐUR" húðflúrað á handlegginn á sér ef hún gæti klárað pylsurnar," útskýrir ritstjóri Grapevine, Bart Cameron.

Roth var einmitt að skrifa grein nýverið um nýja bylgju húðflúra í New York sem hún kallar "clever tattoos" eða snjöll tattú og íslenska orðið blaðamaður þótti greinilega yfirmáta snjallt. Smávaxni ritstjórinn kláraði pylsurnar átta og þrátt fyrir að hafa unnið veðmálið skellti hún sér líka á blaðamannshúðflúrið. Ekki færri en fjórir erlendir blaðamenn flykktust á eftir þeim skötuhjúum til Fjölnis tattú á Laugavegi 54 og fengu sér öll orðið "blaðamaður" á handlegginn, þar á meðal blaðamenn Esquire og NME. "Svo fengu þrír Grapevine-menn sér tattúið líka," segir Bart Cameron glaðbeittur.

Að sögn Fjölnis á húðflúrsstofunni Studio 54 hefur þetta verið mjög vinsælt í Bandaríkjunum. "Þetta byrjaði á götunni og í gengjunum og varð svo tískufyrirbæri. Þessi bylgja er að ná vissri fótfestu hér og margir sem láta tattúvera nöfn á sig. Það er allt frá nöfnum á foreldrum og systkinum upp í ljóð og allskyns frasa á erlendum málum." Hvert er furðulegasta orðið sem Fjölnir hefur húðflúrað á fólk? Hann skellir upp úr. "Það er án efa orðið blaðamaður." Sá enginn eftir þessu uppátæki þegar Airwaves var yfirstaðið? "Nei, alls ekki," segir Bart Cameron. "Fólki í New York finnst mjög kúl að vera með íslenskt orð á handleggnum sem enginn skilur nema örfáir innlimaðir. Auk þess er þetta fínasti minjagripur um dvölina á Íslandi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.