Nær þriðjungur af asískum uppruna 21. desember 2004 08:00
Nýjum Íslendingum af asískum uppruna, sem leita sér aðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd hefur farið stórfjölgandi að undanförnu, að sögn Ragnhildar Guðmundsdóttur formanns nefndarinnar. "Í þau fjögur ár sem ég hef verið hér hefur þeim farið stöðugt fjölgandi og nú er svo komið að þeir eru nær þriðjungur þeirra sem hingað koma," sagði Ragnhildur. Hún kvaðst hafa miklar áhyggjur af þessari þróun, því oft reyndist fólkið vera skilríkjalaust, tala lítið, stundum ekkert, í íslensku og eigi greinilega í erfiðleikum. Sem dæmi má nefna föður sem kom með dóttur sinni meðan Fréttablaðið staldraði við. Hann hafði komið áður að sögn Ragnhildar, skilríkjalaus, talaði ekki orð í íslensku en dóttirin sem talaði hrafl túlkaði fyrir hann. "Ég hef miklar áhyggjur af þessum hópi sem stöðugt fer stækkandi," sagði Ragnhildur. "Ég hef áhyggjur af því hvernig lífi þessu fólki er boðið upp á hér. Mér finnst að stjórnvöld þurfi að fylgjast betur með því og við hvaða kjör og aðstæður það býr. Við hljótum að hafa metnað til að láta því líða vel hér þegar það er einu sinni flutt til landsins."
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira