Ekki verið að senda skilaboð 21. desember 2004 00:01
Getgátur eru uppi um að landvistarboð íslenskra stjórnvalda til handa Fischer tengist að einhverju leyti samningaviðræðum Íslands og Bandaríkjanna um framtíð Varnarliðsins. Þór Whitehead sagnfræðingur segir að vissulega geti þetta frumkvæði Íslendinga valdið pirringi í Washington en það sé fullkomlega fráleitt að lesa einhverjar samsæriskenningar út úr þessu máli. Það er aðeins ríflega mánuður síðan Davíð Oddsson, utanríkisráðherra, hitti fráfarandi starfsbróður sinn í Washington til að reyna að koma skriði á samningaviðræðurnar um orustuþoturnar fjórar á Keflavíkurflugvelli. Á þeim fundi var ákveðið að embættismenn landanna myndu halda áfram að ræða málið nú í byrjun næsta mánaðar. Í þessu ljósi virðist tímasetningin á því að bjóða Bobby Fischer landvistaleyfi á Íslandi í besta falli verulega óskynsamleg og líkleg til að reita bandarísk stjórnvöld til reiði í miðjum viðkvæmum samningaviðræðum. Eða hvað? Hafa íslensk stjórnvöld kannski í hyggju að nota þetta mál einhvern veginn sem skiptimynt í samningaviðræðunum? Er verið að senda bandarískum stjórnvöldum skilaboð um að litla Ísland geti gert þeim skráveifu? Þór Whitehead, prófessor í sagnfræði, segir allar slíkar túlkanir fullkomlega fráleitar söguskoðanir. Hann segir Davíð Oddsson áður hafa sent Bandaríkjastjórn skýr skilaboð þess eðlis að hún geti alls ekki skipað hér varnarmálum einhliða. Hann segist því ekkert sérstakt lesa út úr björgunaraðgerðinni gagnvart Fischer. Þór segist ekki telja að Fischer málið hafi nokkur áhrif á samskipti landanna tveggja þegar til lengri tíma er litið. Það kunni að vera að þetta skapi ákveðinn pirring, en þetta hafi engin áhrif á varnarmálin, sem séu ákveðin út frá hagsmunum en ekki tilfinningum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira