Friður í Najaf 27. ágúst 2004 00:01
Friður hefur loks náðst í helgu borginni Najaf í Írak. Í Bagdad brutust hins vegar út átök þegar bandarískar hersveitir birtust. Bush Bandaríkjaforseti hefur viðurkennt í fyrsta sinn að hafa gert mistök í Írak. Eftir blóðsúthellingar í gær hófst nýr dagur með friði og ró í Najaf, eftir að trúarleiðtoganum Ali al-Sistani tókst að ná friðarsamkomulagi við harðlínuklerkinn Múktada al-Sadr í gærkvöldi. Bardagamenn í Mehdi-hersveitum al-Sadrs yfirgáfu Imam Ali moskuna í morgun og afhentu lyklana að henni. Þeir lögðu einnig niður vopn, en fréttamenn Reuters segja þá Medhi-liða sem rætt var við hafa sagst bíða fyrirmæla al-Sadrs og að þeir myndu áfram drepa Bandaríkjamenn og væru reiðubúnir að berjast. Bandarískar hersveitir eiga samkvæmt samkomulaginu einnig að hörfa frá borginni og verður hún vopnalaust svæði. Al-Sadr verður ekki heldur hnepptur í varðhald eða handtekinn. Tugir þúsunda pílagríma eru nú komnir til Najaf til að fagna friði. Í Bagdad fer minna fyrir friði, en bardagar brutust út þar í Haifa-hverfinu, þar sem glæpa- og uppreisnarmenn eru sagðir halda til. Bandarískir hervagnar birtust þar í morgun og þyrlur sveimuðu yfir. Bush Bandaríkjaforseti viðurkennir í fyrsta sinn í viðtali sem birtist í New York Times í morgun, að hann hafi ekki áttað sig á því hvernig ástandið yrði að loknu stríði í Írak. Hann vildi þó ekki ræða nákvæmlega hann hefði gert rangt, en sagði ekki hafa verið gert ráð fyrir upplausn og ofbeldi í kjölfar þess að snöggfenginn sigur vannst á Saddam Hússein og sveitum hans. Bush sagði að brugðist væri við síbreytilegum aðstæðum í Írak, þar sem 989 bandarískir hermenn hafa fallið frá upphafi stríðs í fyrra.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Sjá meira