Vistvæn jól 9. desember 2004 00:01
Lambakjöt í stað svínakjöts og vistvænar jólagjafir sem pakkað er inn í endurnýtanlegan maskínupappír eru meðal hugmynda Landverndar að vistvænum jólum. Hægt er að fylgja þessum hollráðum án þess að draga úr jólagleðinni. Fráleitt er að setja samasemmerki milli vistverndar og leiðinda, að mati Landverndar, sem ætlar sér ekki að eyðileggja jólin með umvöndunum. Í vistvænum jólum felst til dæmis að hafa fremur villibráð og lambakjöt á borðum en svínakjöt og annað kjöt úr verksmiðjubúskap - og kaupa mat sem er framleiddur í heimabyggð, og helst lífrænan. Svo eru það jólagjafirnar og allt sem þeim fylgir. Skrjáfandi, glansandi jólapappír getur verið ljómandi fallegur en hann er ekki hægt að endurvinna. En það er hægt að nýta auglýsingapóst sem kemur inn um bréfalúguna á heimilum að sögn Bryndísar Þórisdóttur hjá verkefninu „Vistvernd í verki“. Hún bendir þeim sem finnst hún ganga hér heldur langt að þeir geti notað maskínupappír, sem er endurvinnanlegur. En Landvernd lumar einnig á hugmyndum sem gerir stóra jólapakka óþarfa og það er að gefa óefnislegar gjafir. Á heimasíðu Landverndar er hægt að fjárfesta í gjafakortum sem gefandinn fyllir út sjálfur. Þar er að finna hugmyndir að gjöfum eins og nuddi, gluggaþvotti og uppvaski auk ýmissa visvænna hugmynda, eins og að nota örtrefjaklúta við jólahreingerninguna og draga úr notkun hreinsiefna. Þá er mælt með því að fólk kaupi íslenskt jólatré. Það hefur ferðast stystu leiðina inn á stofugólf og ber ekki með sér óþekkta plöntusjúkdóma eða lýs.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira