Samgöngur til Vestmannaeyja 9. desember 2004 00:01
Á Alþingi hafa þingmenn lýst yfir áhyggjum yfir versnandi samgöngum við Vestmannaeyjar, en strandsiglingum Eimskips lauk 1. desember. Óskar Stefánsson, formaður Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis, segist trúa að það sé þess virði að kanna hugmyndir um jarðgöng til Vestmannaeyja nánar. "Ég tel að göng geti verið til hagsbóta fyrir allt þjóðfélagið þegar fram líða stundir og ekki síst fyrir Vestmannaeyinga. Sjálfur fer ég því miður alltof sjaldan út í Eyjar, en það kemur fyrir." Óskar vonar að endalok strandflutninga eigi ekki eftir að bitna á landsbyggðinni. "Þjóðvegirnir hafa á síðustu árum batnað mikið og ég vona að þetta verði til hagsbóta fyrir landsbyggðarfólkið, það fái vörurnar sínar fyrr en ella. Samgöngur til flestra þessara staða hafa batnað, en við búum í erfiðu landi og veður geta verið válynd og ekki útilokað að vegir lokist í snjó." Óskar segist vera almennt hlynntur göngum á landsbyggðinni. "Ég tel að þeim fylgi meira viðhald og áhættusamara geti verið til lengri tíma litið að leggja fjallvegi. Ég held að í flestum tilfellum borgi það sig að gera göng í gegnum fjöll sé þess nokkur kostur." Sjálfur er Óskar landsbyggðarmaður, fæddur og uppalinn í Eyjafirðinum, en hefur þó ekki sterkar skoðanir á Héðinsfjarðargöngunum. "Ég hef ekki kynnt mér það mál mikið. Göng yrðu vissulega mikil samgöngubót þarna á milli, en mér finnst hugmyndir um aðra staðsetningu ganganna alveg koma til greina."
Fréttir Innlent Mest lesið „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Innlent Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Erlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra Innlent Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Sjá meira