Innlent

Kveikt í íbúðarhúsi í Saurbæ

Maður á fimmtugsaldri gekk berskerksgang á sveitabæ í Saurbæ í Dölum í dag og reyndi að aka niður sýslumann Dalasýslu, lögreglumann og þriðja mann, sem voru í lögreglubíl á bæjarhlaðinu. Anna Birna Þráinsdóttir sýslumaður segir að maðurinn hafi ekið á fullri ferð á stórri hjólaskóflu á lögreglubílinn og eyðilagt hann. Sýslumanni og hinum tveimur tókst með naumindum að forða sér áður út úr lögreglubílnum og áttu fótum fjör að launa. Maðurinn er síðan talinn hafa kveikt í íbúðarhúsinu en brunaskemmdir urðu litlar. Að sögn sýslumanns var maðurinn sendur á sjúkrahús þar sem hann þurfti á læknishjálp að halda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×