Ekki enn vitað um smitleiðina 9. desember 2004 00:01
Ekki er enn vitað hvernig miltisbrandur barst í hrossin sem drápust á Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Hræin verða brennd í dag. Starfsmenn frá embætti yfirdýralæknis hafa verið að taka sýni af vatni á jörð Sjónarhóls og verða þau notuð til þess að finna hvar miltisbrandurinn átti upptök sín. Á þessari stundu er ekkert um það vitað. Búið er að hlaða mikinn bálköst um hræin af hrossunum fjórum og verða þau brennd í dag, líklega nú í hádeginu ef veður leyfir. Níu manns sem höfðu umgengist hrossin hafa fengið fyrirbyggjandi meðferð og kennir enginn sér meins. Miltisbrandur er bráð baktería sem oftast veldur dauða. Öll dýr með heitt blóð geta fengið þessa bakteríu, þar með talin mannskepnan. Smit verður þó yfirleitt aðeins með því að sýkt dýr eru meðhöndluð. Smit milli dýra eru afskaplega sjaldgæf og sjúkdómurinn smitar ekki manna í milli. Sigurður Örn Hansson aðstoðaryfirdýralæknir sagði í samtali við fréttastofuna að engum stafaði hætta af þessu lengur. Öll tæki sem eru notuð eru hreinsuð á eftir. Skurðgrafa var notuð við að urða fyrsta hræið, áður en vitneskja lá fyrir um að dauðaorsökin hefði verið miltisbrandur. Farið var með hana í Þingvallasveit og mun dýralæknisembættið hafa upp á henni og hreinsa hana.
Fréttir Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira