Tilgangslaust að auglýsa Fellsmúla 14. desember 2004 00:01 "
Þetta var einfaldlega hæsta tilboðið," segir Sigurbjartur Pálsson, oddviti Rangárþings Ytra, um samning um sölu Fiskeldisstöðvarinnar í Fellsmúla. Lögmenn Rangárþings og Ásahrepps gerðu margar athugasemdir við kaupsamninginn við hreppsnefndarmanninn Lúðvík Bergmann og félaga hans Ásgeir Ásmundarson. Meðal annars vegna þess að hrepparnir ætluðu að taka við óverðtryggðu skuldabréf með 7,1% vöxtum til 20 ára sem greiðslu fyrir kaupverðið upp á 21,1 milljón króna. Einnig vegna þess að óskýrt væri með hitaveituréttindi. Sigurbjartur segir þetta byggt á misskilningi sem nú hafi nú verið eytt með sérstökum viðauka. Ekki hafi þó verið gengið formlega frá kaupunum, jafnvel þótt Lúðvík og Ásgeir séu teknir við rekstrinum. "Það eru ýmsir þættir sem greiða þar úr þannig að málið er í biðstöðu eins og er," segir Sigurbjartur. Lögmenn hreppanna gagnrýndu að fjárhagsstaða kaupendanna væri ekki könnuð. Lúðvík hafi verið í vanskilum með 13 milljónir króna í KB banka. "Að sjálfsögðu könnuðum við þetta. Vandi Lúðvíks var hins vegar tilkominn vegna gjaldþrots KÁ. Við höfum staðreynt hjá viðskiptabanka Lúðvíks að hann er langt kominn með að vinna sig út úr þeim vanda," segir Sigurbjartur. Heimir Hafsteinsson, sem situr fyrir Ó-listann í hreppsnefnd Rangárþings Ytra, telur kaupverðið of lágt og að frumskilyrði hafi verið að auglýsa söluna. "Þarna er til dæmis verið að framselja hitaveituréttindi hitaveituréttindi sem ein og sér gera meira en að borga upp þetta skuldabréf. Það er verið að gefa eignir fiskeldisstöðvarinnar," segir Heimir. Sigurbjartur segir að sölutekjur af heitu vatni frá Fellsmúla séu innan við ein milljón króna á ári. Þá hafi menn innan fiskeldisgeirans lengi vitað að til stæði að selja stöðin. Einnig hafi verið mikilvægt atriði að nýr rekstraraðili héldi áfram viðskiptum um seiðaeldi fyrir veiðivötn á afréttum. "Það höfðu sex aðilar sett sig í samband við okkur út af sölu stöðvarinnar. Við mátum það þannig að það þjónaði ekki tilgangi að auglýsa," segir hann.
Fréttir Innlent Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira