Olíuverð aldrei hærra 18. ágúst 2004 00:01
Metverð fékkst fyrir olíufatið í gær, fjörutíu og sjö dollarar. Sérfræðingar sjá engin teikn um verðhjöðnun á næstunni og víða um heim er stefnt að neyðaraðgerðum til að draga úr eldsneytisnotkun. Olíufatið hefur aldrei verið jafn dýrt og það var eftir lokun markaða í gær, eða um fjörutíu og sjö dollarar á fatið. Ástæða hækkunarinnar í gær er sú að hátt eldsneytisverð hefur ekki enn haft mælanleg áhrif á efnahagslíf í Bandaríkjunum og því telja sérfræðingar að eldsneytisþörf þar muni ekki minnka með þeim afleiðingum að verð lækki. Það sem af er þessu ári hefur eldsneytisþörf Bandaríkjanna aukist um 3,5 prósent. Enn ein ástæða hækkana á þessu ári er stóraukin þörf í Kína en hún jókst um 21 prósent á fyrri helmingi þessa árs og olíuinnflutningur jókst um 40 prósent. Í dag virðist sem verð á olíu verði áfram í kringum fjörutíu og sjö dollara. Nú telja sérfræðingar tvær ástæður geta orðið til enn frekari hækkunar, eða í það minnsta til þess að verð lækki ekki: annars vegar minnkandi olíubirgðir í Bandaríkjunum og hins vegar ótti við skemmdarverk á olíuleiðslum Íraks. Stuðningsmenn harðlínuklerksins Muqtada al-Sadr hafa hótað að kveikja í olíulindum og varpa sprengjum á olíuleiðslur, yfirgefi sveitir ríkisstjórnar Íraks ekki Najaf innan tveggja sólarhringa. Sérfræðingar á olíumörkuðum telja einnig að OPEC-ríkin geti ekki framleitti meiri olíu eins og þau hafa lofað og því muni verðið haldast hátt enn um hríð. Víða annars staðar er áhrifa þessa háa verðs farið að gæta. Til að mynda hyggjast nokkur Asíuríki grípa til aðgerða til að draga úr eldsneytisnotkun og -eftirspurn. Meðal hugmynda er að þvinga fólk til að nota almenningssamgöngur og hvetja verslanir og kvikmyndahús til að loka snemma. Þótt aldrei hafi fleiri dollarar fengist fyrir olíufatið er þetta þó ekki metverð, sé litið til sögunnar og metverð í olíukreppum fortíðar framreiknað. Verðið eftir uppreisnina í Íran í kringum 1980 væri til að mynda framreiknað í kringum áttatíu dollara á fatið. Myndin er af verðbréfamiðlurum í New York
Erlent Fréttir Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira